![]() |
Draupnir - skólablað
Fyrsta skólablaðið sem kom út í Flensborg og var gefið út af nemendum í Flensborg hét Skólapilturinn. Var hann fyrst gefinn út 8. nóvember 1892 og átti Bjarni nokkur Pétursson einn stærsta þáttinn í því. Skólapilturinn var hvorki prentaður né fjölritaður heldur var hann skrifaður upp í eina bók sem síðan var lesið upp úr á málfundafélögum í skólanum. Skólapilturinn var gefinn út um það bil vikulega (líklega á meðan að skóli var starfandi) frá árinu 1892-1938. En þá var blaðið lagt niður.
![]() |
![]() |
![]() |
Í desember 1939 kom út fyrsta eintak af Draupni og var hann prentaður og veglegur í alla staði. Í ritnefnd fyrsta Draupnis voru fyrrverandi forseti Íslands, Kristján Eldjárn, Gísli Þ. Stefánsson, Tómas Tómasson, Karl Jónasson og Helga Magnúsdóttir. Það var von þeirra að Draupnir myndi lifa með frægð og sóma fyrir nemendur og skólann um ár og aldir. Nú 70 árum síðar er von okkar sem stöndum að gerð Draupnis enn sú sama.
Frá upphafi hefur tilgangur blaðsins verið að nemendur gætu komið skoðunum sínum á framfæri eða tjáð sig um önnur mál. En lengst af hefur tjáningarþörf nemenda hér við skólann verið í lágmarki og svo virðist vera enn. Stundum hafa þó komið út Draupnisblöð sem hægt er að finna í hafsjó af efni frá Flensborgurum en það er álíka sjaldgæft og að sjá nemendur koma í nemendamyndatökurnar fyrir blaðið.
Draupnir hefur ekki komið sleitalaust út frá árinu 1939. Það komu út þrjú eintök 1939-1940 en síðan ekki aftur fyrr en 1953-1955 þegar meðal annars fyrrverandi skólameistari vor, Kristján Bersi Ólafsson, var í ritnefnd (1953). Þá varð aftur talsvert hlé á útgáfu Draupnis og var það ekki fyrr en 1972-1973 að Draupnir leit aftur dagsins ljós. Í millitíðinni höfðu komið öðru hverju út ýmis önnur skólablöð, t.d. Samtíningur. Draupnir kom síðan mjög reglulega út með nokkrum veglegum árgöngum til ársins 1986 en þá fór að draga úr útgáfu blaðsins.
Margir þekktir menn og konur hafa staðið að útgáfu blaðsins, ritað í það eða verið á annan hátt viðriðnir. Auk þeirra sem áður hafa verið nefndir má bæta við Árna M. Matthiesen, Guðmund Árna Stefánsson, Ingvar Viktorsson, Vigdísi Grímsdóttur, Davíð Þór Jónsson, (Steinn Ármann komst víst aldrei lengra en í fréttabréfið) og Óttari Proppé svo einhverjir séu nefndir. Árið 1994 var reynt að endurvekja blaðið og kom það þá út í þrjú ár. Frá árinu 2002 hefur blaðið komið út árlega allt til dagsins í dag og verður vonandi útgáfu blaðsins haldið áfram á hverju ári um ókomin ár.
Af hverju Draupnir?
Draupnir er þjált orð, létt er að bera það fram og það ber vissa virðingu með sér. Frá Draupni er sagt í Snorra-Eddu. Dvergar tveir, Sindri og Brokkur, smíðuðu gullhring sem þeir nefndu Draupni. Fór Brokkur með hringinn til Ásgarðs og gaf hann Óðni. Þegar Baldur var drepinn með brögðum Loka var útför Baldurs þannig að hann var brenndur. Setti Óðinn þá hringinn Draupni á bálið og fékk hann við það þá náttúru að níundu hverja nótt drupu af honum átta hringir jafnþungir og hann. Það er von okkar að blaðið gefi svipað af sér og hafi svipaða náttúru og hringurinn.






