
Fjarnám í Flensborgarskólanum
Haustið 2009 mun Flensborgarskólinn bjóða nemendum grunnskólanna fjarnám í kjarnagreinunum dönsku, ensku, íslensku og stærðfræði. Að auki er stefnt að því að bjóða upp á almennt fjarnám við skólann.
Fyrir grunnskólanemendur samhliða námi í 10. bekk
Haustið 2009 verða í boði eftirtaldir áfangar fyrir grunnskólanema: DAN152, ENS103, ÍSL103 og STÆ103.Innritun í þetta nám fer fram í Flensborgarskólanum dagana 15 maí.-11. júní 2009. Nemendur þurfa að fylla út umsóknareyðublað og skila því á skrifstofu skólans. Þar sem samræmd próf hafa nú verið lögð niður þá lítum við svo á að það verði að vera í höndum grunnskólanna að veita heimild til nemenda og ákveða hvort viðkomandi uppfylli skilyrði og hafi forsendur til að innrita sig í slíkt nám. Kennslan hefst formlega dagana 27. og 28. ágúst 2009. Bókalista er að finna á vef skólans.
Sækja umsóknareyðublað til útprentunar.
Uppfært maí 2009

