Flensborgarskólinn - Land-Nám



Land-Nám

Þetta samstarfsverkefni er milli Flensborgarskólans í Hafnarfirði og Tornbjerg Gymnasium í Odense, Danmörku. Samstarfið hófst óformlega fyrir 2 árum síðan, þá eingöngu á milli kennara en haustið 2005 bættust síðan nemendur í hópinn. Nemendur skipa nýnemar skólanna beggja, þ.e. umsjónarnemendur Erlu Ragnarsdóttur og 1.c klassen í Tornbjerg, umsjónarnemendur Allan Christiansen.

113-hópurinn Frá því að samstarf milli nemenda hóf göngu sína hefur ýmis konar verkefnavinna farið fram. til að mynda lögðu nemendur Erlu fyrir könnun í félagsfræði um hagi ungs fólks í Flensborg, en það verkefni var unnið í samvinnu við Sigurbjörgu Önnu stærðfræðikennara. Einnig hafa verkefni verið unnin í dönsku, náttúrufræði  og í ensku. Báðir nemendahóparnir hafa t.a.m. opnað heimasíðu og er heimasíða 1.c í Danmörku er hér og heitir Drankerne.

Myndirnar að ofan eru frá vori 2006 og á þeim eru nemendur sem tóku þátt í verkefninu á þeim tíma. Samstarfsverkefnið hefur haldið áfram af krafti og hér að neðan er sagt frá ýmsum viðburðum tengdum því.


Danmerkurheimsókn í apríl 2008:
Flensborg og Tornbjerg Gymnasium
Samstarfsverkefni Flensborgarskólans og Tornbjerg-gym í Odense árið 2008 er nú u.þ.b. að ljúka. Flensborgarar skelltu sér til Danmerkur á dögunum og í 10 daga heimsóttu þeir dönsku samnemendur sína, ferðuðust um landið og fræddust um danska siði o . . . meira

Íslandsheimsókn í september 2007:

Talað tungum á göngum Flensborgarskólans
Danskir nemendur frá Tornbjerg Gymnasium í Oðinsvéum eru í heimsókn hér í Flensborgarskóla. Það er áfanginn SAG 171 sem stendur að þessari nemendaheimsókn, en hún setur svo sannarlega svip á skólastarfið þessa dagana. Sextíu nemendur, bæði danskir o . . . meira

Nemendaheimsókn frá Tornbjerg í september 2006:

Heimsókn frá Tornbjerg
Dagana 13.-22. september næstkomandi verða nemendur í 2. bekk C í menntaskólanum í Tornbjerg, í Óðinsvéum, DK, í heimsókn hjá okkur, ásamt kennurum sínum. Dagskrá heimsóknarinnar verður í stórum dráttum blanda af kennslu og leik, þ.e. báðir nemend . . . meira

 

Flensborgarskólinn | Hringbraut 10 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 0400 | Fax 565 0491 | flensborg@flensborg.is