Mentorverkefnið Vinátta
Flensborgarskólinn hóf þátttöku í verkefninu árið 2006. Á heimasíðu verkefnisins segir meðal annars: Kjarni verkefnisins er að háskólastúdentar og menntaskólanemar veiti grunnskólabörnum stuðning og hvatningu. Áhersla er lögð á gagnkvæman ávinning svo og hagsmuni samfélagsins í heild af því að börn og ungmenni kynnist og læri af aðstæðum hvors annars. Nemendur fá tækifæri til að verða jákvætt afl og fyrirmynd í lífi grunnskólabarna og börnin mynda tengsl við þroskaðan, fullorðinn einstakling utan fjölskyldu sinnar.
Umsjónarkennari verkefnisins í Flensborg er Kristín Magnúsdóttir, félagsfræðikennari krimag@flensborg.is.
Október 2010
Mentorverkefnið Vinátta
Mentorverkefnið Vinátta er nú komið í fullan gang og er í boði hér í Flensborg í fjórða sinn. Markmiðið er að framhaldsskóla- eða háskólanemi verði fyrirmynd, stuðningur og vinur grunnskólabarns með reglulegum samverustundum sem standa yfir einn vet . . . meira
|
|
Febrúar 2010
Mentorar og börn í Keiluhöllinni
Snemma í febrúar fóru mentorar héðan úr Flensborg og barnaskólabörn á þeirra vegum í óvissuferð í Keiluhöllina þar sem þau léku keilu og fengu veitingar á eftir. Ferðin var á vegum Mentorverkefnisins vináttu og þarna voru fjölmörg börn og mentorar ú . . . meira
|
|
20. október 2009
Fjórða ár Mentorverkefnisins í Flensborg
Flensborgarskólinn hefur nú hafið fjórða árið í þátttöku Mentorverkefnisins Vináttu. Verkefnið byggir á þeirri hugmyndafræði að tryggt samband milli barns og fullorðins einstaklings (háskóla- eða framhaldsskólanema) til lengri eða skemmri tíma byggi . . . meira
|
|
23. október 2009
Vinátta - Mentorverkefnið
Flensborgarskólinn hefur nú hafið þriðja árið í þátttöku Mentorverkefnisins Vináttu. Verkefnið byggir á þeirri hugmyndafræði að tryggt samband milli barns og fullorðins einstaklings (háskóla- eða framhaldsskólanema) til lengri eða skemmri tíma b . . . meira
|
|