![]() |
eTwinning samskipti
E-Twinningsverkefnin er á vegum Comenius Evrópubandalagsins. Samskipti við erlenda skóla er eitt af því sem tekist er fyrir hendur og eru þau margvísleg.
Við í Flensborg tókum upp samskifti undir stjórn Dagrúnar Ólafsdóttur, stærðfræðikennara, við ungverskan skóla, Csepel - Sziget Secondary School of Technology and Student Hostel from Hungary í Budapest. Sem dæmi um verkefni má taka, að fimmtudaginn 22. mars voru nemendur í líffræði að meta íslenskt súkkúlaði til að kynna það fyrir Ungverjum. Nemendur smökkuðu fjórar tegundir af íslensku súkkulaði, tóku af því myndir og sendu síðan sýnishorn til Búdapest. Von er á að fá súkkulaði frá þeim til að smakka eftir páskana.
Hér heimasíða nemendanna í Ungverjalandi: www.etwinning.ini.hu.



