![]() |
Starfsbraut
Starfsbrautin er fyrir nemendur sem notið hafa verulegrar sérkennslu á grunnskólastigi og þurfa sérhæft einstaklingsmiðað nám miðað við færni og áhuga. Um er að ræða fjögurra ára námstilboð. Á 1. og 2. námsári er áhersla lögð á hefðbundið bóknám með starfstengdu ívafi m.a. með vettvangsferðum í fyrirtæki og stofnanir. Á 3. og 4. námsári er (auk bóklegs náms) áhersla á starfskynningar og vinnustaðanám. Aðeins er tekið inn á þessa braut að hausti. Nemendur brautarinnar hafa jafnframt möguleika á að stunda nám í almennum áföngum. Forsenda fyrir inntöku nemanda er að greining sérfræðinga fylgi umsókn.
Markmið
- Að stuðla að alhliða þroska nemandans.
- Að auka sjálfstæði nemandans í daglegu lífi og örva hann til sjálfstæðrar ákvarðanatöku.
- Að veita nemendum menntun sem nýtist þeim í daglegu starfi og tómstundum.
- Að auka reynslu, þekkingu og færni nemandans til að takast á við viðfangsefni fullorðinna í daglegu lífi.
- Að nemandinn öðlist þekkingu og leikni til að stunda einföld störf á vernduðum eða almennum vinnustað.
Leiðir
Kennsla er byggð á rökstuddri námsáætlun fyrir nemendahóp eða einstakling, sem byggir á markmiðum aðalnámskrár framhaldsskóla og upplýsingum um þarfir nemanda og mati á stöðu hans í námi og þroska. Áhersla er á einstaklingsmiðað nám samkvæmt einstaklingsnámskrá sem tekur mið af færni og þörfum nemendans.
Helstu námsþættir
- bóklegar námsgreinar: s. s. íslenska, stærðfræði og enska
- samfélagsgreinar: s. s. lífsleikni og landafræði
- verk- og listgreinar: s. s. myndmennt, handmennt og heimilisfræði
- heilsurækt og heilbrigðisgreinar: s. s. Íþróttir
- starfsfræðsla, starfsþjálfun og vinnustaðanám


