
Stærðfræðikeppni
Stærðfræðikeppni Flensborgarskólans fyrir grunnskólanema
Heimasíða stærðfræðikeppninnar
Keppnin hefur verið haldin árlega og næstum óslitið frá 1998. Ýmsir aðrir framhaldsskólar hafa komið að keppninni með því að hýsa hana hjá sér. Grunnskólanemendum í öðrum sveitarfélögum er því bent á þann framhaldsskóla sem er á þeirra svæði.
Þeir skólar sem að undanförnu hafa annast keppnina eru m.a. Fjölbrautaskóli Suðurlands, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Fjölbrautaskóli Vesturlands, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ, Borgarholtsskóli og Menntaskólinn í Kópavogi.
Á heimasíðu keppninnar eru nánari upplýsingar um stærðfræðikeppnina ásamt verkefnum úr fyrri keppnum.


