Innritun fyrir haustönn 2012
Innritun nemenda á haustönn 2012 fer fram skv. auglýsingu á www.menntagatt.is.
Dagsetningar eru:
- Innritun á starfsbraut stendur til 29. Febrúar.
- Umsækjendur sem útskrifast úr grunnskóla vorið 2012
- Forinnritun12.-30. mars 2012.
- Staðfesting/breyting á umsókn 4. maí - 8. júní 2012.
- Umsækjendur fæddir 1995 eða fyrr
- 4.apríl -31. maí 2012
Öll innritun í Flensborgarskólann fer fram rafrænt á www.menntagatt.is.
Mat á námi úr öðrum skólum kostar kr. 2.000,- sem greiðast fyrirfram áður en umsókn fer í endanlega afgreiðslu. Mikilvægt er að þeir nemendur sem innritast á almenna námsbraut komi í viðtal hjá námsráðgjafa svo þeir fái sem besta þjónustu. Skrifstofa skólans veitir frekari upplýsingar.
Námsbrautir í boði eru sem hér segir:
| Almenn námsbraut | AN2* |
| Félagsfræðabraut 140 ein. | FÉ, FÉ-ÍA, FÉ-ÍÞ (þrjár leiðir)** |
| Viðskipta- og hagfræðibraut 140 ein. | VH, VH-ÍA, VH-ÍÞ (þrjár leiðir)** |
| Málabraut 140 ein. | MB, MB-ÍA, MB-ÍÞ (þrjár leiðir)** |
| Náttúrufræðibraut 140 ein. | NÁ, NÁ-ÍA, NÁ-ÍÞ (þrjár leiðir)** |
| Upplýsinga- og fjölmiðlabraut | GUF |
| Upplýsingatækni | FM*** |
| Viðskiptabraut - tveggja ára | VI |
| Viðbótarnám til stúdentsprófs af starfsnámsbrautum | VSS |
* AN2 er skammstöfun almennrar brautar fyrir nemendur sem þurfa upprifjun í einhverjum samræmdum greinum grunnskólaprófs.
** ÍA er skammstöfun fyrir íþróttaafrekssvið og ÍÞ er skammstöfun fyrir íþróttasvið.
***Fyrir nemendur sem lokið hafa upplýsinga- og fjölmiðlabraut.
Öllum stúdentsbrautum fylgja tveir möguleikar á kjörsviði til viðbótar grunnkjörsviði. Um er að ræða kjörsvið íþróttasviðs og íþróttaafrekssviðs. Auk þess geta nemendur nýtt nám úr viðurkenndum listaskólum á sambærilegan hátt inn í stúdentsprófið. Nemendur sem velja íþróttaafrekssvið á braut verða að skrifa í athugasemdir, íþróttagrein og íþróttafélag. Þessi möguleiki er bundinn við að viðkomandi íþróttafélag eða deild hafi gert samkomulag við skólann.
Verklag við innritun nýnema:
Allir þeir sem velja Flensborgarskólann við innritun á menntagatt.is eru settir á lista yfir huganlega nemendur. Við hverja úrvinnslu er ákveðið hvort forgangraðað verði á tilteknar brautir, enda ræðst það af samsetningu nemendahópsins á hverjum tíma.
Öllum nemendum er raðað þannig að skólasókn og meðaltal þeirra greina sem settar eru sem skilyrði á braut ráða hvar í röðinni þeir standa. Raðað er frá tölunni 1 og eins hátt og umsóknir eru margar. Síðan fer þessi röð í vinnslu hjá mennta- og menningarmálaráðuneyti (eða aðila sem það velur). Þá ræður samspil umsókna í öðrum skólum og það hvort við erum í fyrra eða seinna sæti hvar nemandinn lendir. Flensborgarskólinn hvikar ekki frá þessari röðun.
Tekið skal fram að þeir sem setja Flensborgarskólann á umsóknarblað sitt sem annan hvorn valkostinn fara á fyrrgreindan lista, nema sótt sé um nám sem ekki er í boði hér. Það hvort þeir komast inn ræðst af innritunarkerfinu og fjárheimildum skólans.
Þeim sem ekki eru með Flensborgarskólann, þegar innritun lýkur, sem valkost geta ekki vænst þess að fá hér vist, ekki síst í ljósi þess hve mikil aðsókn hefur verið að skólanum.
Almenn inntökuskilyrðin á brautir eru sem hér segir:
Almenn braut
Þú þarft að hafa lokið grunnskólaprófi.
Þú getur valið almenna braut ef þú hefur ekki gert upp hug þinn á hvaða braut þú vilt fara.
Þú ferð á almenna braut ef þú uppfyllir ekki inntökuskilyrði inn á aðra braut. Námstilboð miðast við þann grunn sem nemandinn hefur.
Félagsfræðabraut
Þú þarft að hafa lokið grunnskólaprófi í íslensku, samfélagsfræði, stærðfræði og ensku. Einkunn í íslensku, samfélagsfræði og ensku skal vera 6,0 og ekki lægri en 5,0 í stærðfræði.
Fjölgreinabraut
Nemendur sem ekki uppfylla inntökuskilyrði sem sett eru fyrir aðrar námsbrautir, hafa notið sérþjónustu í grunnskóla eða stundað hafa nám í Fjölgreinanámi Lækjarskóla. Námsframboð þetta er samstarfsverkefni Flensborgarskóla, Iðnskólans í Hafnarfirði, Lækjarskóla, Menntamálaráðuneytis og Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar
Íþróttasvið
Þetta er val innan stúdentsbrauta og háð sömu skilyrðum og þar gilda um inntöku.
Íþróttaafrekssvið
Þetta er val innan stúdentsbrauta og háð sömu skilyrðum. Til að geta stundað þetta nám þarf að hafa samþykki deildar hjá félagi sem hefur samning við skólann.
Listnámssvið
Þetta er val innan stúdentsbrauta og háð sömu skilyrðum og þar gilda um inntöku. Til að geta stundað þetta nám þarf að stunda nám við viðurkenndan listnámsskóla.
Málabraut
Þú þarft að hafa lokið grunnskólaprófi í íslensku, dönsku, ensku og stærðfræði. Einkunn í íslensku, dönsku og ensku skal vera 6,0 og ekki lægri en 5,0 í stærðfræði.
Náttúrufræðibraut
Þú þarft að hafa lokið grunnskólaprófi í íslensku, náttúrufræði, stærðfræði og ensku. Einkunn í íslensku, stærðfræði og náttúrufræði skal vera 6,0 í hverri þessara greina og ekki lægri en 5,0 í ensku.
Starfsbraut
Starfsbraut er fyrir nemendur sem notið hafa verulegrar sérkennslu í grunnskóla, verið á starsbraut, í sérdeild eða sérskóla. Forsenda fyrir inntöku nemenda er að greining sér-fræðinga fylgi umsókn.
Innritun fer fram samkvæmt 32. gr. og 34 gr. laga um framhaldsskóla nr. 92, 2008.
Upplýsinga-og fjölmiðlabraut
Þú þarft að hafa lokið grunnskólaprófi í íslensku og stærðfræði og fá að lágmarki 5,0 í hvorri grein.
Viðskiptabraut - starfsnám
Þú þarft að hafa lokið grunnskólaprófi í íslensku og stærðfræði og fá að lágmarki 5,0 í hvorri grein. Nánari skilyrði kunna að verða sett.
Viðskipta- og hagfræðibraut- stúdentspróf
Þú þarft að hafa lokið grunnskólaprófi í íslensku, ensku og stærðfræði. Einkunn í íslensku, ensku og stærðfræði skal vera 6,0 í hverri þessara greina.


