Flensborgarskólinn - Skólinn



Flensborgarskólinn í Hafnarfirði
Flensborgarskólinn er fjölbrautaskóli sem starfar eftir áfangakerfi. Skólinn á sér langa og merka sögu allt aftur á 19. öld, en frá árinu 1975 hefur hann verið framhaldsskóli. Um langt árabil var starfrækt öldungadeild við skólann og eins var Fiskvinnsluskólinn í Hafnarfirði á sínum tíma deild innan skólans. Flensborgarskólinn er með elstu starfandi skólum á Íslandi, en hann hefur tekið margvíslegum breytingum á langri ævi. Hann var upphaflega stofnaður sem barnaskóli árið 1877, en var breytt í "alþýðu-og gagnfræðaskóla" fimm árum síðar eða árið 1882, en við það ártal hafur aldur skólans oftast verið miðaður.

Smelltu hérFlensborgarskólinn
Heilsueflandi framhaldsskóli 2010

Flensborgarskólinn er fyrsti framhaldsskólinn á landinu til að innleiða hugmyndafræði Heilsueflandi framhaldsskóla og er það gert í nánu samstarfi við Lýðheilsustöð. Í kjölfarið fylgja 21 framhaldsskóli sem nú eru að hefja sitt undirbúningsár. Flensborgarskólinn hefur lengi haft þá stefnu að nálgast forvarnir út frá víðtæku og jákvæðu sjónarhorni með það að markmiði að stuðla að vellíðan og auknum árangri allra í skólasamfélaginu, nemenda og starfsfólks ... meira

 

 

 

 

 

 

Flensborgarskólinn | Hringbraut 10 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 0400 | Fax 565 0491 | flensborg@flensborg.is