
Framtíðarsýn Flensborgarskólans
"Flensborgarskólinn í Hafnarfirði er leiðandi framhaldsskóli, sem veitir nemendum sínum bestu tækifæri til þekkingaröflunar, þjálfunar og þroska."
Flensborgarskólinn er framhaldsskóli sem hefur það meginhlutverk að búa nemendur sína sem best undir frekara nám á háskólastigi jafnframt því að veita haldgóða almenna menntun, menntun sem nýtist nemendum í daglegu lífi og starfi.
Flensborgarskólinn er framhaldsskóli þar sem í boði er persónuleg þjónusta, öruggt námsumhverfi, forysta í tækni og nýjungum og kennslu og lögð er áhersla á að hann sé eftirsóknarverður vinnustaður nemenda, kennara og annarra starfsmanna. Skólinn stendur á gömlum merg og er, nú sem fyrr, mikilvægur hlekkur í menningar- og íþróttalífi Hafnarfjarðar.
Einkunnarorð skólans eru þekking - þjálfun - þroski

