Einkunnarorð skólans eru: Þekking - Þjálfun - Þroski
Markmið
Markmið Flensborgarskólans er:
- Að búa nemendur sem best undir frekara nám og starf.
- Að auka tengsl við önnur skólastig til að skapa meiri samfellu í allt nám.
- Að halda starfseminni innan fjárheimilda.
- Að leiðbeina nemendum við að tileinka sér öguð vinnubrögð.
- Að nemendur skólans ljúki skilgreindu námi.
- Að skólinn sé eftirsóttur vinnustaður fyrir nemendur og starfsfólk.
- Að vera í fremstu röð í stærðfræði og raungreinum.
- Að koma á möguleika til fjarnáms.
- Að auka frumkvæði í kennslu.
- Að gera þriggja ára nám til stúdentsprófs að raunhæfum möguleika.
- Að nýta gæðastjórnun við kennslu og nám.
- Að tryggja ráðgjöf fyrir nemendur á sviði náms, í félagslegum efnum og hvað varðar forvarnir.
- Að byggja upp þannig að stæður að nemendur geti verið öruggir með sjálfa sig og eigur sínar í skólanum.
- Að tryggja öryggi gagna og búnaðar, skólans, nemenda og starfsmanna.
Gildi
Í Flensborgarskólanum er:
- Í boði persónuleg þjónusta þar sem áhersla er á að mæta nemandanum á hans forsendum.
- Svigrúm til breytinga, úrbóta og þróunarstarfs með þátttöku nemenda og starfsfólks.
- Gefið tækifæri til þess að nemendur alist upp við lýðræði og skapandi hugsun.
- Lögð áhersla á að stuðla að fjölbreyttu og heilbrigðu félagslífi.
- Litið á alla einstaklinga sem jafnréttháa.
- Unnið að því að skapa öruggt, jákvætt og hvetjandi námsumhverfi.
Ætlunarverk
Í Flensborgarskólanum viljum við:
- Auka frumkvæði og nýjungar í kennslu allra námsbrauta.
- Bjóða fjölþætt framhaldsnám sem hentar breiðum hópi nemenda.
- Veita nemendum á almennri námsbraut og sérdeild þá valkosti sem bestir teljast.
- Vera leiðandi í notkun upplýsinga- og tölvutækni á öllum sviðum námsins.
- Vera leiðandi í uppbyggingu og notkun upplýsinga- og tölvutækni á öllum sviðum í starfseminni.
- Vera vel búinn tækjum til framleiðslu og dreifingar á útvarps- og sjónvarpsefni í tengslum við nám og félagsstörf.
- Stuðla að alhliða þroska nemenda og búa þá undir störf og frekara nám.


