Skólareglur. Almennar reglur.
- Nemendur, kennarar og aðrir starfsmenn eiga að mæta stundvíslega til starfa, hvort sem um er að ræða kennslu, próf eða önnur störf á vegum skólans.
- Nemendur og kennarar skulu sýna hver öðrum kurteisi og tillitssemi. Kennari er verkstjóri í kennslustund. Það þýðir að fyrirmælum hans ber að hlýða svo að allir þeir sem tímann sækja geti fengið að njóta kennslunnar í friði.
- Öll meðferð og neysla áfengis, tóbaks og annarra vímuvaldandi efna er bönnuð í húsnæði og á lóð skólans á vettvangi skólastarfsins.
- Allir eiga að nota aðra skó innandyra en utandyra. Skór eiga að vera í hillum eða skápum þegar þeir eru ekki í notkun.
- Nemendum og kennurum ber að skila kennslustofum snyrtilegum í lok kennslustundar.
- Nemendum og starfsmönnum ber að ganga snyrtilega um húsnæði og lóð skólans og fara vel með húsmuni og tækjabúnað
- Notkun farsíma (GSM) er bönnuð í kennslustundum.
- Nemendur bera sjálfir ábyrgð á að kynna sér reglur og starfsáætlanir skólans og kynna sér þær leiðir og möguleika sem þeir hafa til að koma málum sínum á framfæri.
- Nemendur skulu fylgjast reglulega með tilkynningum á Námsneti, vef skólans, auglýsingaskjá og tölvupósti skólans.
Ef nemandi er staðinn að broti á ofangreindum reglum eru upplýsingar þar um færðar inn í athugasemdir i INNU. Ef starfsmaður sem uppgötvar brotið hefur ekki aðgang að INNU upplýsir hann skólameistara eða aðstoðarskólameistara. Ef viðkomandi nemandi brýtur reglur á sama hátt öðru sinni fær hann boðun um að ræða við stjórnendur, sem veita honum tiltal. Ef um frekari brot verður að ræða kemur brottvikning til athugunar.


