Flensborgarskólinn - Prófreglur



Prófreglur

Reglur um framkvæmd prófa

  1. Nemendur skulu koma stundvíslega til prófs. Þeir skulu áður hafa kynnt sér á auglýsingatöflu skólans hvar þeim er ætlaður staður í prófinu. Hafi nemendur bækur eða annan farangur meðferðis í próf skal skilja hann eftir á kennaraborðinu eða þar sem yfirsetumaður ákveður. Nemendur skulu hafa skriffæri með sér í próf, en skólinn leggur þeim til pappír. Þurfi þeir á öðrum tækjum að halda, t.d. vasatölvu, skulu þeir sjálfir hafa þau meðferðis. Ekki er heimilt að skiptast á um að nota sama tækið.
     
  2. Nemendum er óheimilt að aðstoða aðra eða þiggja aðstoð frá öðrum í prófi. Þeim er einnig óheimilt að nota önnur hjálpargögn en þau sem sérstaklega eru leyfð hverju sinni. Brot á þessari reglu veldur tafarlausri brottvísun úr prófinu og falli á prófinu, en skólastjórn ákvarðar um frekari viðurlög.
     
  3. Próftími er afmarkaður, að jafnaði 90 mínútur. Ekki er undir neinum kringumstæðum leyft að nota lengri tíma til prófsins en ákveðinn er hverju sinni. Nemandi sem kemur of seint til prófs fær ekki framlengdan tíma, heldur skerðist próftími hans sem seinkomunni nemur. Ekki er heimilt að skila úrlausnum fyrr en klukkustund er liðin frá upphafi prófsins, en eftir þann tíma fær enginn að hefja prófið.
     
  4. Nemandi sem ekki getur komið í próf vegna veikinda skal tilkynna forföll í síðasta lagi kl. 12:00 að morgni prófdagsins. Hann skal staðfesta veikindin með læknisvottorði, til að fá að ganga undir sjúkrapróf. Vottorðinu er skilað áður en sjúkraprófið hefst.
     
  5. Einkunnir er hægt að skoða í INNU þegar líður á prófatímann. Kennurum er óheimilt að gefa upp einkunnir fyrr, þótt eftir því sé leitað.
     
  6. Sé þess óskað er hægt að fresta prófi og taka það sem sjúkrapróf. Það er tilkynnt til skrifstofu skólans fyrir klukkan 12:00 þann dag sem aðalprófið er. Frestunin kostar kr. 1.500, og þarf greiðsla að berast skrifstofunni daginn fyrir sjúkrapróf.

Reglur um frestun prófa

Nemendur sem eiga samkvæmt próftöflu að taka

  • þrjú próf á sama degi
  • tvö próf á sama tíma
  • tvö próf á sitt hvorum próftímanum tvo daga í röð

geta fengið einu eða öðru prófinu frestað án gjalds og taka þá sjúkrapróf í þeim.

Umsóknir um að fresta prófi af þessum sökum skulu hafa borist til aðstoðarskólameistara skv.fresti sem auglýstur verður sérstaklega hverju sinni. Nemendur hafa leyfi til að fresta prófum þó slík frestun falli ekki undir þessar reglur og fer sú frestun eftir reglum um sjúkrapróf.  Nemendur þurfa þá að greiða gjald fyrir slíka frestun prófa.

 

Flensborgarskólinn | Brekkugötu 17-19 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 0400 | Fax 565 0491 | flensborg@flensborg.is