|
Skólasóknarreglur
Markmið
Á öllum vinnustöðum eru í gildi ákveðnar reglur um viðveru. Sama á við í Flensborgarskólanum. Til þess að ná árangri í námi þarf að stunda námið af kostgæfni og sækja allar kennslustundir eins vel og kostur er.
Skólasókn
- Nemendur eiga að mæta stundvíslega í allar kennslustundir og próf, nema lögmæt forföll komi til.
- Það telst seinkoma ef nemandi er ekki mættur þegar kennari er búinn að lesa upp en fjarvist þegar 15 mín. eru liðnar af kennslustund. Ef nemendur vilja gera athugasemdir við fjarvistaskráninguna þá koma þeir athugasemdum innan tveggja vikna til viðkomandi kennara/umsjónarkennara, sem kannar málið í samráði við mætingastjóra.
- Fjarvist (F) úr einni kennslustund (60 mín.) gildir sem 1 fjarvistarstig, seinkoma gildir 0,5 stig.
- Nemendur bera ábyrgð á eigin mætingu. Þeir geta fylgst með stöðu sinni í upplýsingakerfinu Innu https://nemendur.inna.is og eiga að þekkja þær reglur sem gilda um skólasókn.
- Nemendur eiga að sinna öllum persónulegum erindum sínum utan skólatíma. Sé það ekki unnt og erindið brýnt er nemendum bent á að biðja um leyfi hjá mætingastjóra eða í afgreiðslu. Mætingastjóri sér um leyfisumsóknir.
- Hafi kennari ekki mætt í kennslustund þegar 10 mín. eru liðnar af tímanum skulu nemendur leita eftir skýringum á skrifstofu.
Veikindi
- Veikindi og önnur forföll skal tilkynna samdægurs fyrir kl. 12:00 veikindadaginn. Tekið er við tilkynningum um forföll í síma 565 0400 eða á netfangið skrifstofa@flensborg.is. Skólameistari getur krafist þess að veikindi séu staðfest af lækni.
- Vottorð
- Foreldrar/forráðamenn nemenda sem búa á heimilum þeirra mega skila staðfestingu á veikindum viðkomandi nemenda á skrifstofu skólans. Þeir sem ekki geta skilað þeim í eigin persónu semja við skrifstofuna þar um. Vottorð, eða undirrituð staðfesting foreldra/forráðamanna, verða að berast skrifstofu skólans eigi síðar en þremur virkum dögum eftir að veikindum lýkur.
- Aðrir nemendur skila læknisvottorði ef þeir telja þess þörf. Þau þurfa að berast innan viku frá lokum veikinda nema um annað sé samið.
- Vottorð eru skráð og dragast frá þeim fjarvistum sem skráðar eru þá daga sem vottorðin gilda. Nemandi með mörg vottorð skráð getur verið meðhöndlaður sem langveikur, sbr. reglur hér að neðan.
- Ef nemandi gerir grein fyrir öllum veikindaforföllum í samræmi við 7. og 8. grein hér að ofan þá valda veikindi því ekki að hann fái lægri einkunn en 7 fyrir skólasókn. (Veikindi eru dregin frá upp að 93%.)
Leyfi
- Hægt er að sækja um leyfi, gegn skriflegum vottorðum, vegna eftirfarandi:
- Æfingar/leitir á vegum björgunarsveita
- Fjarvera vegna dauðsfalla í nánustu fjölskyldu
- Ferðir/æfingar á vegum landsliða í íþróttum
- Námskeið/námsferðir t.d. á vegum skiptinemasamtaka (hámark sex skóladagar)
- Fjölskylduferðir (af sérstöku tilefni). Ef nemandi er yngri en 18 ára þarf beiðni forráðamanna að fylgja umsókn.
- Tekið skal fram að ekki eru veitt leyfi vegna skemmtiferða.
- Nemendum eru ekki reiknaðar fjarvistir vegna viðurkenndra ferða á vegum skólans.
- Kennarar veita ekki leyfi. Öll leyfi eða vottorð eru færð af skrifstofu eða mætingastjóra.
Langtímaveikindi og nemendur eldri en 21 árs
- Nemendur, sem eiga við sjúkdóma að stríða eða búa við aðstæður sem geta haft áhrif á skólasókn þeirra, leggja fram viðeigandi gögn hjá námsráðgjafa eða mætingastjóra við upphaf annar. Hafi þeir einu sinni lagt inn gögn varðveitast þau hjá mætingastjóra sem metur hvenær þurfi að endurnýja þau. Skólinn gætir réttar langveikra nemenda og hefur námsráðgjafi milligöngu í slíkum málum af hálfu skólans. Stöðu þeirra þarf að meta með hliðsjón af skólasókn og námsárangri.
- Nemandi sem lagt hefur fram viðeigandi gögn sbr. 12. lið hér að ofan getur sótt um að vera undanþeginn vottorðareglum. Sótt er um slíkar undanþágur í upphafi hverrar annar hjá mætingastjóra.
- Vera kann að heilsa og aðstæður leyfi það ekki að nemandi sé í fullu námi. Þegar nemandi er mikið fjarverandi vegna veikinda áskilur skólinn sér rétt til meta hvort hægt sé að heimila fullt nám, skert nám eða hvort viðkomandi nemandi taki sér tímabundið eða varanlegt leyfi frá námi við Flensborgarskólann.
- Um nemendur sem eru 21 árs eða eldri gildir að þeir geta sótt um að vera undanþegnir reglum um vottorðaskil. Sótt er um þessa undanþágu hjá mætingastjóra í upphafi hverrar annar.
- Nemendur sem fá undanþágu frá vottorðareglum skrifa undir samkomulag þar sem fram kemur að undanþágan er takmörkuð og að hana eigi aðeins að nota ef brýna nauðsyn beri til. Jafnframt er þar kveðið á um að nemendur beri ábyrgð á því að skila verkefnum á réttum tíma.
Einkunnir fyrir skólasókn
- Einkunn er gefin fyrir skólasókn og birtist hún í námsferli nemenda og á útskriftarskírteini. Með góðri skólasókn getur nemandi fengið einingu sem hægt er að nota sem valeiningu á námsbraut. Nemandi sem sækir skóla illa á það á hættu að missa einingar sem verður þá að vinna upp með öðrum hætti.
- Eining er gefin fyrir raunmætingu í skólasókn. Eining fyrir skólasókn er ekki gefin oftar en nemur meðalnámstíma (í önnum) námsbrautarinnar sem nemandinn er skráður á. Eining fyrir skólasókn er mest gefin 8 sinnum.
- Skólasóknareinkunn er reiknuð á eftirfarandi hátt:
Skólasókn Skólasóknareinkunn Eining 92,5% - 100,0% 10
+1
87,5% - 92,4% 8
0
82,5% - 87,4% 6
0
Undir 82,5 % 4
-1
Fall - Nemandi sem fellur vegna skólasóknar er meðhöndlaður sérstaklega. Honum er boðin skólavist, til reynslu í eina önn, að uppfylltum skilmálum. Nemandi sem fellur tvívegis á skólasókn tapar skólavist sinni þangað til annað verður ákveðið. Nemandi sem fellur á skólasókn lendir ávallt á biðlista og á ekki öruggt sæti í skólanum næstu önn.
- Nemandi, sem er í færri en 16 kennslustundum á viku, á ekki rétt á að fá skólasóknareiningu samkvæmt þessum viðmiðunum.
Annað
- Tvisvar á önn eru fjarvistayfirlit send heim til foreldra/forráðamanna nemenda yngri en 18 ára, og þeirra sem eldri eru, sem þannig hefur verið samið við.
- Ef nemandi er fjarverandi hluta úr degi vegna veikinda eða annarra erinda eru upplýsingar geymdar en ekki skráðar. Ef um ítrekaðar, útskýrðar fjarvistir er að ræða er viðkomandi nemanda heimilt að áfrýja til skólaráðs sem getur þá fellt niður þessar fjarvistir eftir því sem hæfa þykir.
- Nemendur og kennarar geta skotið vafaatriðum til úrskurðar skólameistara.
Síðast uppfært / leiðrétt (liður 20):
29. nóv. 2011


