Reglur um tölvunotkun
- Öll umgengni um tölvur skólans og tölvuver á að vera í samræmi við almennar umgengnisreglur í skólanum, ganga skal vel um tæki og tölvuver.
- Tölvurnar á að nota í námstilgangi og því hafa nemendur, sem eru að vinna að verkefnum eða öðru tengt náminu, forgang á tölvur skólans.
- Hver og einn ber ábyrgð á sínu notandanafni á kerfi skólans og má ekki láta það öðrum í té.
- Gagna- og vefsvæði nemenda takmarkast við 200 MB en hægt að sækja um stækkun.
- Ekki má vista gögn eða setja upp forrit eða breyta uppsetningum á einstaka tölvum, öll gagnavistun skal vera í My Documents - sem er á gagnanetþjóni skólans.
- Fjöldasendingar eða ruslpóst er ekki leyfilegt að senda á alla notendur póstkerfisins samtímis, aðeins stjórnendur eða forystumenn mega senda upplýsingar eða tilkynningar tengdar skólastarfi til notenda með slíkum hætti.
- Skólinn áskilur sér rétt til að fara yfir, skoða og eyða gögnum á vef- og gagnasvæðum nemenda ef tilefni er til vegna brots á tölvureglum eða almennum siðareglum.
- Skilyrðislaust ber að hlýða starfsmönnum skólans finni þeir að tölvunotkun hjá einstaka notendum kerfisins.
Brjóti notandi gegn reglum þessum um tölvunotkun má umsvifalaust svipta hann aðgangi að tölvukerfi skólans.


