Flensborgarskólinn - Veikindi



Veikindi og vottorð

Veikindi þarf  að tilkynna daglega. Það er hægt að tilkynna þau með eftirfarandi hætti (nemandinn getur tilkynnt veikindi sjálfur):

  • Hringja á skrifstofu skólans, þetta þarf að gerast fyrir hádegi hvern dag sem veikindin vara. Sími: 5650400
  • Senda tölvupóst á skrifstofa@flensborg.is, þarf einnig að senda fyrir hádegi, hvern dag sem veikindi vara.

Vottorð: Til að veikindatilkynningar séu teknar gildar þarf vottorð frá forráðamönnum að berast skrifstofu innan þriggja daga eftir að veikindum lýkur. Einungis forráðamenn geta skilað vottorðum. Það má skila vottorðum með þrennum hætti:

  • Fylla út eyðublað á skrifstofu skólans. Þetta eyðublað má einnig nálgast á heimasíðu skólans.
  • Senda vottorð/eða staðfestingu á veikindum í tölvupósti, pósturinn þarf að berast frá viðurkenndu netfangi(netfangi forráðamanna).
  • Senda fax, þá þarf forráðamaður að hringja á undan og tilkynna skrifstofu að fax sé á leiðinni.

Þessar reglur gilda einnig fyrir nemendur sem orðnir eru 18 ára og búa hjá aðstandendum.

 

Flensborgarskólinn | Brekkugötu 17-19 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 0400 | Fax 565 0491 | flensborg@flensborg.is