Flensborgarskólinn - Afmælisár



125 ára afmæli skólans þann 1. október 2007

Þann 1. júní 2007 voru 125 ár liðin frá því að stofnskrá Flensborgarskólans var undirrituð og þann 1. október 1882 var skólinn settur í fyrsta sinn. Skólinn fagnar því á afmælisári 2007 með eftirfarandi dagskrá:

Laugardaginn 29. september verður opið hús í Flensborgarskólanum kl. 13:00 - 17:00. Þann 1. október verða liðin 125 ár frá því að skólinn var settur í fyrsta sinn og markar dagskráin um helgina og í næstu viku innan skólans lokapunktinn þeirri dagskrá sem hefur verið í gangi á afmælisárinu.  Að þessu tilefni verður opnuð myndlistarsýning í skólanum kl. 13:30 á laugardaginn. Þar sýna fjölmargir myndlistarmenn úr hópi fyrrverandi og núverandi starfsmanna og nemenda skólans. Gestum gefst gott tækifæri til að skoða nýbyggingu skólans og þær viðamiklu breytingar og endurbætur sem standa yfir á eldri húsum skólans. Gestum verður boðin leiðsögn um skólahúsið þar sem m.a. verður hægt að skoða nýja aðstöðu starfsbrautar og fjölmiðadeildar og fjölbreytt safn skólans tengt náttúrufræði og jarðfræði.  Kennarar kynna námsframboð skólans og námsgögn. Kór skólans syngur fyrir gesti í Hamarssal kl. 14:00, 15:00 og 16:00.  Útskriftarnemar sjá um að bjóða öllum gestum þjóðlegar veitingar í boði skólans.

Allir eru velkomnir og eru eldri Flensborgar, fyrrverandi nemendur og starfsmenn, sérstaklega hvattir til að heimsækja skólann. Jafnframt eru nemendur unglingadeilda grunnskólanna og foreldrar þeirra hvattir til að koma í heimsókn og sjá hvaða þjónustu og aðstöðu skólinn hefur að bjóða.

Myndir frá opnu húsi og myndlistarsýningu 29. sept: [Opið hús] [ Sýningin ]


Sérstök hátíðardagskrá var 1. júní 2007 við útskrift nemenda, afmælismóttöku og fleiri dagskrárliði ásamt stórveislu og dansleik um kvöldið. Ýmsir listviðburðir voru með kór skólans í fararbroddi þar sem Eyjólfur Eyjólfsson, tenór og fyrrum nemandi skólans, kom fram. 

Myndir frá hátíðardagskránni 1. júní: [Útskrifrarathöfn] [Afmælismóttaka]
 

Flensborgarskólinn | Hringbraut 10 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 0400 | Fax 565 0491 | flensborg@flensborg.is