Flensborgarskólinn - Sjálfsmat

 

Sjálfsmat í Flensborgarskólanum
Í Flensborgarskólanum starfar sjálfsmatshópur undir stjórn Unnars Arnar Þorsteinssonar. Tilgangur sjálfsmatsins er að leita leiða til að vita hvernig unnið er í skólanum, greina það sem vel er gert og tryggja framhald þess og þróun. Einnig er tilgangurinn að finna það sem betur má fara og leita úrbóta. Þetta er samkvæmt lögum um framhaldsskóla, en í þeim segir að allir skólar eigi að innleiða aðferðir til sjálfsmats sem eigi að ná til allra þátta skólastarfsins. Megintilgangur matsins er að leggja grunn að sívirku umbótastarfi sem á að bæta námsumhverfi, líðan og árangur nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans.

Sjálfsmatshópurinn hefur starfað frá hausti 1998. Í honum hafa setið m.a. fulltrúar kennara, nemenda og annarra starfsmanna auk stjórnenda skólans.

Sjálfsmatsskýrslur

Tíu ára langtímaáætlun frá 2003 til 2012

Flensborgarskólinn | Hringbraut 10 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 0400 | Fax 565 0491 | flensborg@flensborg.is