
Starfsemi safnsins
Gögn á safni
Bókasafn skólans er á miðhæðinni í Miðhúsi. Bækur, mynddiskar, myndbönd, snældur, tímarit, hljóðbækur og úrklippusafn standa nemendum og kennurum til boða. Útlán eru mest á sviði tungumála, sagnfræði og félagsvísinda en mesta notkun safnsins felst í lánum á námsbókum innanhúss. Þegar nýnemar hefja nám eru þeir þegar orðnir skráðir lánþegar og þurfa ekki lánþegakort.
Tölvur og netaðgangur
Nemendur hafa aðgang að tölvum á safninu ásamt skanna og prentara. Þráðlaus nettenging stendur nemendum einnig til boða. Standtölva á safninu er ætluð til leitar í Gegnir.is, bókasafnskerfi sem hýsir samskrá íslenskra bókasafna. Safnkosturinn er að mestu leyti komin í Gegni en útlánakerfin verða enn um sinn tvö því yfirfærsla stendur yfir úr skráningarforritinu Metrabók yfir í Gegni.
Innkaup bóka og tímarita
Kennarar og nemendur skólans hafa rétt á að koma með tillögur og óskir, bæði varðandi starfsemi safnsins og innkaup á bókum og tímaritum. Stefna safnsins í þeim efnum er að öllu jöfnu að setja í forgang íslenskar bækur í sagnfræði og bókmenntum en auk þess skipa listgreinar, tungumál og félagsfræði nokkurn sess. Öll innkaup eru í samráði við forstöðumann safnsins: bg@flensborg.is.
Lesaðstaða
Nemendur hafa aðgang að lesaðstöðu inni á safninu sjálfu, í einangraðri lesstofu og hópvinnuherbergi.
Flokkunarkerfi
Safnkosturinn er flokkaður samkvæmt Dewey flokkunarkerfinu sem er alþjóðlegt. Kerfið skiptist í 10 efnisflokka:
| 000 | Rit almenns efnis |
| 100 | Heimspeki og sálfræði |
| 200 | Trúarbrögð |
| 300 | Samfélagsgreinar |
| 400 | Tungumál |
| 500 | Raunvísindi |
| 600 | Tækni, framleiðsla, iðnaður |
| 700 | Listir, skemmtanir, íþróttir |
| 800 | Bókmenntir |
| 900 | Saga, landafræði, ævisögur |
Kerfið greinist síðan í tugi, einingar og brot, allt eftir því hversu sértækt efni bókarinnar er.
Röðun í hillur
Á kjalmiða bókanna stendur flokkunartalan og síðan fyrir neðan þrír fyrstu stafirnir úr nafni höfundar eða úr titli ef höfund vantar. Bókunum er raðað eftir flokkunartölu:
| 102 | 170 | 290 | 323 | 410 | 510 |
| Wil | Mar | Som | Agu | Len | Han |
Innan hverrar flokkunartölu er síðan raðar eftir t.d. höfundi:
| 813 | 813 | 813 | 813 | 813 | 813 |
| Auð | Bja | Dan | Ein | Fin | Guð |


