Flensborgarskólinn - Forvarnir



 

Forvarnir

Forvarnafulltrúi Flensborgarskólans er Hrafnkell Tumi Kolbeinsson. Nemendur jafnt sem aðrir eru hvattir til að hafa samband  eftir efnum og ástæðum, hvort heldur sem um er að ræða stærri eða smærri mál. Fastur viðtalstími er á föstudögum kl. 11:35 til 12:35, en einnig má panta tíma með tölvupósti: tumi@flensborg.is.

 

Stefnan í Flensborgarskólanum

Stefna Flensborgarskólans er að stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum og jákvæðri lífssýn nema  og vinna gegn sjálfseyðandi hegðun og grípa inn í mál ef þess er þörf. Stefnu Flensborgarskóla í forvörnum hyggst skólinn m.a. ná með því að hafa sérstakan forvarnafulltrúa.

 

Reglur skólans varðandi tóbak, áfengi og fíkniefni

  • Skólinn er reyklaus. Nemendum og starfsmönnum er óheimilt að reykja í húsnæði skólans og á skólalóð. Skólaböll eru sömuleiðis reyklaus.
  • Öll meðferð og neysla áfengis og annarra vímuvaldandi efna er bönnuð í húsnæði og á lóð skólans.
  • Á skólaskemmtunum og ferðalögum í nafni skólans  er öll meðferð áfengis og annarra vímuefna bönnuð.
  • Öllum alvarlegri málum, svo sem sölu eða milligöngu um sölu áfengis, sölu eða dreifingu ólöglegra fíkniefna er umsvifalaust vísað til lögreglu. Skólaráð tekur málið svo fyrir og ákveður m.a. hvort nemanda er vísað úr skóla á meðan rannsókn fer fram.

Reglur á böllum

  • Verði nemi uppvís að drykkju á balli er honum vísað frá ballinu sé hann 18 ára eða eldri en hringt í forráðamenn sé hann yngri en 18 ára og þeim gert að sækja hann.
  • Í kjölfarið er nemi boðaður í viðtal hjá forvarnafulltrúa og farið yfir stöðu mála. Við fyrsta brot fer neminn í bann á næsta ball. Við annað brot fer neminn í skemmtanabann í heilt ár frá broti. Við þriðja brot er nemanum vísað til  skólameistara.
  • Öll meðferð tóbaks er bönnuð og nemendum sem verða uppvísir að því að brúka það er vísað frá ballinu án frekari viðurlaga.

Hlutverk forvarnafulltrúa Flensborgarskólans

  • Er í forsvari fyrir stefnumörkun og framkvæmd forvarna í skólanum sem hefur það að markmiði að flétta forvarnir sem mest inn í daglegt líf í skólanum.
  • Situr í nemendaverndaráði.
  • Stendur fyrir námskeiðum og fræðslu fyrir nemendur, foreldra og starfsmenn.
  • Tekur á móti ábendingum ef grunur er um vímuefnanotkun nemenda og vinnur úr þeim í samráði við nemendaverndarráð.
  • Leitast við að efla  fjölbreytt félagslíf innan skólans með nemendum og félagsmálafulltrúa með heilbrigða lífshætti að leiðarljósi.
  • Er alltaf viðstaddur á dansleikjum á vegum nemendafélagsins og öðrum stórviðburðum í skemmtanalífi nemenda þegar því verður viðkomið.
  • Tekur viðtal við þá nema sem teknir eru undir áhrifum á skemmtunum á vegum skólans.
  • Hefur fastan vikulegan viðtalstíma.
  • Leitast eftir öflugu samstarfi við nemendafélag, námsráðgjafa, félagsmálafulltrúa, bæjaryfirvöld, lögreglu, aðra forvarnarfulltrúa og fagaðila utan skólans.
  • Sækir fræðslunámskeið og fyrirlestra um efni sem tengist starfinu eins og þurfa þykir.
  • Skrifar skýrslu í lok skólaárs um starf vetrarins.

 

Flensborgarskólinn | Hringbraut 10 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 0400 | Fax 565 0491 | flensborg@flensborg.is