Flensborgarskólinn - Áfallaráð



Viðbragðsáætlun Flensborgarskólans vegna áfalla.
Nemendaverndarráð fer með verkstjórn þegar válegir atburðir gerast sem snerta nemendur og starfsmenn skólans. Það kallar til þá starfsmenn sem þarf til viðbótar þeim sem í ráðinu sitja.

Mikilvægt er að þeir sem veljast í áfallaráð geti unnið undir miklu álagi og séu vel undir það búnir að mæta fólki sem er hrætt, hnuggið eða sorgmætt. Áfallateymið er skipað stjórnendum (skólameistara, aðstoðarskólameistara, áfangastjóra, mannauðsstjóra), námsráðgjöfum, skólariturum og þeim öðrum starfsmönnum sem kalla þarf til þegar á reynir.

Áfallaráð getur einnig leitað til eftirtalinna aðila:

  • Læknis / hjúkrunarfræðings
  • Prests eða annars sambærilegs aðila.
  • Oddvita nemendafélags

Skólameistari er formaður ráðsins og hann kallar áfallaráð saman þegar þörf krefur.  Hann aflar þeirra upplýsinga sem þarf og tekur ákvarðanir.  Hann sér að jafnaði um samskipti við fjölmiðla ef til kemur.

Hlutverk námsráðgjafa er fyrst og fremst að skipuleggja sálræna skyndihjálp við þann eða þá sem fyrir áfalli verða.  Mikilvægt er að þessi skipulagning sé þannig að sá sem fyrir áfalli verður fái strax þá aðstoð og aðhlynningu sem nauðsynleg er.

Mikilvægt er að upplýsingar berist hratt og örugglega þar sem jafnframt dregið óþarfa æsingi og misvísandi skilaboðum sem kunna að berast.

Skólafulltrúi/ritari miðlar og tekur við upplýsingum.  Ef hringt er og beðið um að ná í nemanda úr tíma er nauðsynlegt að skólafulltrúinn/ritarinn spyrji um erindi til að leggja mat á mikilvægi og hraða sem þarf að vera á málinu. T.d. að koma í veg fyrir að nemanda sé t.d. tilkynnt um dauðsfall beint í gegnum símann.  Ef við á getur skólafulltrúi/ritari haft samband við skólameistara eða námsráðgjafa.  Nemandinn er síðan tekinn út úr tíma, fylgt á stað þar sem er gott næði og honum tilkynnt um atburðinn og hlúð að honum eins og hægt er.  Mismunandi er hvernig fólk tekur áföllum og skólinn þarf að vera undir það búinn að bjóða fram þá aðstoð sem nauðsynleg er til að nemandinn fari ekki út úr skólanum í þannig ástandi að hann geti orðið sjálfum sér og öðrum til skaða.

Forvarnafulltrúi og félagslífsfulltrúi geta þurft að  gegna lykilhlutverkum í boðskiptaferlinu.

Ef nemandi t.d. lætur lífið eða slasast alvarlega hafa stjórnendur samband við kennara viðkomandi og oddvita NFF  til að leita upplýsinga  um hver vinahópurinn er svo hægt sé að ná sem fyrst til þeirra. Nauðsynlegt  er að nánustu vinir fái aðstoð, svo og að aðstandendur þeirra fái vitneskju um atburðinn þannig að nemendur geti fengið stuðning þegar heim er komið.

Það skiptir miklu máli að kennarar eða starfsmenn sem veita áfallahjálp séu rólegir og gefi sér nægan tíma. Mikilvægt er að sá sem verður fyrir áfalli finni að hann sé öruggur og geti treyst þeim sem eru hjá honum og að farið sé á afvikinn stað svo að viðkomandi verði ekki fyrir truflun.  Sá sem fyrir áfalli verður þarf að finna fyrir hlýju, vinsemd og nærveru, hann þarf að hughreysta og sýna skilning.  Staðreyndir þarf að skýra og reyna að fá viðkomandi til þess að horfast í augu við raunveruleikann.  Honum er nauðsyn að fá að tjá sig til að koma skipulagi á tilfinningar sínar og hugsun. 

Ef slys hefur borið að höndum í skóla hefur það forgang að veita líkamlega skyndihjálp. Sálræn skyndihjálp felst í því að kennarar og starfsmenn skóla róa og hugga nemendur og starfsfólk og leyfa þeim að fá sem eðlilegasta útrás fyrir tilfinningar sínar sem geta birst á mismunandi hátt, m.a. sem grátur, ógleði, skjálfti og köfnunartilfinning en geta líka verið doði, tómleikatilfinning, fólksfælni og þörf fyrir einveru.

Viðbrögð Flensborgarskólans við áföllum

Fyrstu viðbrögð:

  1. Sá sem fyrstur fær upplýsingar um dauðsfall eða alvarlegt slys kemur þeim til skólameistara eða staðgengils hans.  Upplýsingar fara ekki lengra fyrr en skólameistari hefur gefið fyrirmæli svo um.
  2. Skólameistari/staðgengill aflar staðfestra upplýsinga. 
  3. Skólameistari/staðgengill/námsráðgjafi kallar til nemanda (ef um slíkt mál er að ræða) og flytur honum fregnir af andláti/slysi.  Hlúð er að nemandanum eins og unnt er.
  4. Skólameistari/staðgengill kallar áfallaráð skólans saman á fund þar sem verkum er skipt og fyrstu aðgerðir ákveðnar. 
  5. Skólameistari/staðgengill kallar kennara og aðra starfsmenn skólans saman til að tilkynna hvað gerst hefur og hvernig skólinn hyggst taka á málum. 
  6. Skólafulltrúi/ritari sér um að upplýsingar berist til alls starfsfólks skólans. Mikilvægt er að kennari/ar þess/þeirra nemenda er málið varðar fái upplýsingar sem fyrst. Hringja þarf í þá sem ekki eru á staðnum.
  7. Athuga þarf hvort einhver nemandi/nemendur/starfsmaður/starfsmenn  tengjast atburðinum/slysinu/dauðsfallinu sérstaklega og þurfa að fá upplýsingar um atburðinn í einrúmi áður en nemendahópnum er tilkynnt um það sem gerst hefur.  Hægt er að tilkynna nemendum um atburðinn á tvennan máta: 
    1. Kennarar segja frá atburðinum hver í sinni skólastofu - allir á sama tíma. 
    2. Nemendur eru kallaðir á sal þar sem skólameistari/staðgengill segir frá atburðinum.  Æskilegt að prestur eða viðlíka aðili sé viðstaddur. ( Aðstandendur hins látna geta haft um þetta að segja).
    3. Æskilegt er að nemendur fái að ræða atburðinn og líðan sína. 

Ef um dauðsfall er að ræða:

1.       Húsvörður flaggar í hálfa stöng að tilkynningu lokinni.

2.       Skólafulltrúi/ritari setur fram dúkað borð og kveikir á kerti.

3.       Samskipti við fjölskyldu þess látna eru í höndum skólastjórnenda/námsráðgjafa sem njóta aðstoðar  umsjónarkennara ef um nemanda er að ræða.

4.       Í lok  skóladagsins kallar skólameistari eða staðgengill hans áfallaráð skólans saman.  Farið er yfir nöfn þeirra sem tengjast atburðinum  s.s. ættingja og vini.  Aðgerðir næstu daga ræddar.

Viðbrögð næstu daga

  1. Hlúð er að nemendum og þeim gefinn kostur á að vinna með tilfinningar sínar.  Boðið er upp á einstaklingsviðtöl.  Nauðsynlegt getur reynst að fá utanaðkomandi aðstoð til að álag verði ekki of mikið á starfsfólki skólans, t.d. sálfræðing eða prest.
  2. Hafi nemandi eða starfsmaður látist er hins látna minnst með sameiginlegri athöfn í umsjá prests.  Ritari sér um að minningabók liggi frammi.
  3. Húsvörður flaggar á jarðarfarardag.
  4. Haldið er áfram næstu vikur og mánuði að hlúa að nemendum og starfsfólki skólans.  Gefa skal gaum að áfallastreitu meðal nemenda og starfsmanna skólans.  Bjóða skal upp á hópvinnu eða einstaklingsviðtöl ef þörf er á.

Alvarleg slys í skóla

  1. Sá starfsmaður sem kemur fyrstur að slysi í skóla sendir einhvern nærstaddan strax til skólameistara/staðgengils/ skólafulltrúa til að tilkynna slysið.  Starfsmaðurinn reynir að halda nemendum frá slysstað og veitir þá aðstoð sem þörf er á.
  2. Skólameistari/staðgengill/skólafulltrúi/ritari hringir á sjúkrabíl og lögreglu(eða vinnueftirlit) eftir atvikum.  Skólameistari/staðgengill/námsráðgjafi hringir heim til aðstandenda. 
  3. Skólameistari/staðgengill biður viðkomandi starfsmann að skrá niður vitni að slysinu.
  4. Skólameistari/staðgengill kallar áfallaráð skólans saman á fund þar sem verkum er skipt og fyrstu aðgerðir ákveðnar.
  5. Skólameistari/ staðgengill kallar kennara og aðra starfsmenn skólans saman til að tilkynna hvað gerst hefur og hvernig skólinn hyggst taka á málum.  Kennarar tilkynna nemendum um slysið samtímis.
  6. Skólafulltrúi/ritari sér um að upplýsingar berist til alls starfsfólks skólans. Mikilvægt er að umsjónarkennari/ar þess/þeirra nemenda er málið varðar fái upplýsingar sem fyrst. Hringja þarf í þá sem ekki eru á staðnum.
  7. Athuga þarf hvort einhver nemandi/nemendur/starfsmaður/ starfsmenn  tengjast atburðinum/slysinu/dauðsfallinu sérstaklega og þurfa að fá upplýsingar um atburðinn í einrúmi áður en nemendahópnum er tilkynnt um það sem gerst hefur.  Hægt er að tilkynna nemendum um atburðinn á tvennan máta:
    1. Kennarar segja frá atburðinum hver í sinni skólastofu - allir á sama tíma. 
    2. Nemendur eru kallaðir á sal þar sem skólameistari/staðgengill segir frá atburðinum.  Æskilegt að prestur eða viðlíka aðili sé viðstaddur. ( Aðstandendur hins látna geta haft um þetta að segja).
    3. Æskilegt er að nemendur fái að ræða atburðinn og líðan sína. 
  8. Námsráðgjafi/umsjónarkennari nemandans sér um tengsl við aðstandendur og/eða sjúkrahús eftir atvikum.

 Andlát nemanda / starfsmanns í skólafríi

  1. Skólameistari/staðgengill sér til þess að starfsfólk sé upplýst með viðeigandi hætti.  
  2. Skólameistari/staðgengill sendir samúðarkveðjur til fjölskyldu fyrir hönd skólans.
  3. Nemendum  er tilkynnt um andlátið fyrsta skóladag og  viðkomandi er sýnd virðing með sameiginlegri kyrrðarstund/minningarstund í upphafi næstu annar.

Ef um alvarleg veikindi eða slys á nemanda, foreldri, starfsmanni eða nánum aðstandanda er að ræða er mikilvægt að

  • ört upplýsingastreymi sé til skólans 
  • upplýsingar komi frá presti eða skólameistara
  • kennarar komi upplýsingum til nemenda samtímis
  • athuga hvort heimsóknir eru mögulegar eða heppilegar

 

Dæmi um hvernig kennari getur flutt nemendum erfiðar fréttir vegna slyss eða dauðsfalls:

Dæmi:

Kæru nemendur!
Ég flyt ykkur sorgarfréttir.  Við höfum fengið vitneskju um það að nemandinn/kennarinn/starfsmaðurinn _________________ hafi lent í alvarlegu slysi. Samkvæmt heimildum okkar liggur hann/hún á sjúkrahúsi og er ástand hans/hennar mjög alvarlegt.
Ég vil biðja ykkur öll að hugsa vel til hans/hennar.  Ef þið hafið  einhverjar spurningar bendi ég ykkur á að hafa samband við þá aðila  sem sitja í afallaráði. 
Þeir eru skólameistari, aðstoðarskólameistari,námsráðgjafi/ar, (forvarnafulltrúi, félagslífsfulltrúi, kennarinn, eftir því sem við á) _______________ og fulltrúi á skrifstofu.

Kæru nemendur!
Ég flyt ykkur sorgarfréttir.
Nemandinn/kennarinn/starfsmaðurinn________________ lést í dag/í gær af völdum slyss/vegna sjúkdóms.
Ég vil biðja ykkur öll að hugsa til hans/hennar með hlýhug og þakka fyrir þann tíma sem leiðir ykkar lágu saman.  Einnig sendum við fjölskyldunni hugheilar samúðarkveðjur.
Ef þið hafið einhverjar spurningar bendi ég ykkur á að hafa samband  við þá aðila sem sitja í áfallaráði. 
Þeir eru skólameistari, aðstoðarskólameistari,námsráðgjafi/ar, (forvarnafulltrúi, félagslífsfulltrúi, kennarinn, eftir því sem við á) _______________ og fulltrúi á skrifstofu.

  

Flensborgarskólinn | Hringbraut 10 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 0400 | Fax 565 0491 | flensborg@flensborg.is