Flensborgarskólinn - Einelti



 

Viðbragðsáætlun gegn einelti
Það er skýr stefna Flensborgarskólans að einelti verði ekki liðið í skólanum.  Vakni grunur eða liggi fyrir staðfesting um að einelti sé í gangi skal tekið á málunum strax. 


Skilgreining á einelti

Einelti er endurtekið, neikvætt, meðvitað eða ómeðvitað atferli eins eða fleiri einstaklinga sem beinist gegn ákveðnum einstaklingi. Ójafnvægi er milli geranda og þolanda sem upplifir sig vanmáttugan. Mikilvægt er að hafa í huga að allir geta orðið fyrir einelti.


Grunur um einelti

Ef grunur er um að einelti eigi sér stað skal sá sem fær vitneskju um málið hafa samband við umsjónarkennara, námsráðgjafa eða stjórnendur skólans. Kanna skal allar ábendingar til hlítar. Hægt er að koma ábendingum á framfæri með því að hitta ofangreinda aðila á skólatíma, hafa samband símleiðis eða senda tölvupóst (námsráðgjafar - skólameistari, aðstoðarskólameistari - umsjónarkennarar).  Unnið er með ábendingar í trúnaði sé þess óskað.


Meginmarkmið eineltisáætlunar

  • að til sé skilvirkt ferli sem fylgt er þegar upp koma ábendingar um hugsanlegt eða staðfest einelti
  • að ferli eineltismála sé öllum þeim sem að skólasamfélaginu koma ljóst og upplýsingar um það séu aðgengilegar
  • að vera forvarnaráætlun
  • að stuðla að jákvæðum samskiptum


Birtingarmyndir

Birtingarmyndir eineltis geta verið margs konar:

  • Andlegt einelti getur t.d. verið niðrandi athugasemdir, hótanir, stríðni og uppnefni, munnleg og/eða skrifleg. Einnig getur verið um líkamstjáningu að ræða, svo sem augnagotur, andlitsgrettur o.s.frv.
  • Félagslegt einelti: t.d. baktal, rógi dreift um viðkomandi, útilokun, hunsun eða höfnun frá félagahópi.
  • Rafrænt einelti: t.d. sms, blogg eða msn.
  • Beint líkamlegt ofbeldi: t.d. að slá, sparka eða hrinda.
  • Efnislegt einelti: t.d. skemmdir á eigum svo sem fatnaði.
  • Kynferðisleg áreitni: t.d. líkamleg, orðabundin eða táknræn athugasemd eða spurningar um kynferðisleg málefni.

Einelti á sér stað í framhaldsskólum líkt og á öðrum stöðum í samfélaginu en birtingarmynd þess er líkari því sem gerist á vinnustöðum en í grunnskólum. Birtingarmyndir í framhaldsskólum eru aðallega af andlegum og félagslegum toga. Rafrænt einelti hefur einnig aukist með breyttu samskiptaformi og getur oft verið mjög dulið. Kynferðisleg áreitni er ein tegund eineltis, hún er kynferðisleg hegðun sem er ósanngjörn og/eða móðgandi og í óþökk þess sem fyrir henni verður.


Vísbendingar um einelti

Verði breytingar á líðan og hegðun einstaklings ber að skoða hvort hugsanlegt sé að viðkomandi upplifi að hann verði fyrir einelti. Afleiðingar geta lýst sér sem almenn vanlíðan og því mikilvægt að ræða við hlutaðeigandi um hvað hann telji að valdi breyttri líðan eða hegðun. Líkamleg og sálræn einkenni geta komið fram og þróast út í mjög alvarleg einkenni sé ekkert að gert.

Sálrænar afleiðingarnar geta til dæmis birst í

  • kvíða eða þunglyndi,
  • miklum skapsveiflum,
  • ótta eða örvæntingu,
  • minnimáttarkennd eða minnkuðu sjálfsáliti,
  • andúð á skóla eða vinnu,
  • félagslegri einangrun eða öryggisleysi,
  • biturð eða hefndarhug,
  • sjálfsvígshugleiðingum.

Líkamlegar afleiðngar geta til dæmis birst í

  • svefnleysi eða svefnóróa,
  • höfðuðverk eða vöðvabólgu,
  • hjartsláttartruflunum, skjálfta eða svima,
  • þreytutilfinningu eða sljóleika.

Hafa ber í huga að það er ekki einungis sá sem verður fyrir eineltinu sem skaðast. Fjölskylda þolanda finnur oft fyrir miklu álagi þar sem afleiðingar eineltis geta haft svo víðtæk áhrif. Þar sem einelti er látið viðgangast í skóla eða á vinnustað getur það einnig haft umtalsverð áhrif á þá sem þar starfa og mótað þann vinnuanda sem ríkir. Það er því ábyrgð allra þeirra sem verða varir við einelti af einhverju tagi að koma ábendingum þar um til réttra aðila til að hægt sé að vinna með málið.


Viðbragðsáætlun - nemendur

Grunur um einelti

Umsjónarkennari/námsráðgjafi/skólastjórnendur fá ábendingu um eineltið

Skrá niður og afla upplýsinga

Staðfestur grunur um einelti

Samband við aðila málsins nemendur og/eða forráðamenn nemenda undir 18 ára aldri 

     Unnið að lausn samkvæmt verklagi skólans 

Staðfest að ekki sé um einelti að ræða

Gögn geymd

Málið leyst

Samband við aðila, nemendur og/eða forráðamenn nemenda undir 18 ára aldri

Stuðningur við gerendur og/eða þolendur sé þess þörf

Málið ekki leyst

Nemendaverndarráð

Áframhaldandi vinna þar til lausn fæst

Samband við aðila, nemendur og/eða forráðamenn

Stuðningur sé þess þörf

 


Viðbragðsáætlun - starfsfólk

Grunur um einelti

Stjórnendur /næsti yfirmaður /trúnaðarmenn eða aðrir sem fá ábendingu um eineltið koma upplýsingum til viðeigendandi aðila

Skrá niður og afla upplýsinga

Staðfestur grunur um einelti

Samband við aðila málsins

Unnið að lausn samkvæmt verklagi skólans

Staðfest að ekki sé um einelti að ræða

Gögn geymd

Málið leyst

Stuðningur við þolendur /gerendur sé þess þörf

Málið ekki leyst

Utanaðkomandi sérfræðiaðstoð

Áframhaldandi vinna þar til lausn fæst

Stuðningur við þolendur /gerendur sé þess þörf   

 


Forvarnir

Áhersla á jákvæð samskipti í skólasamfélaginu og skýr stefna um að einelti sé ekki liðið er lykilþáttur í forvörnum.  Það er því mikilvægt að efla vitund allra í skólasamfélaginu um jákvæð samskipti og að þau séu einkennandi í öllu starfi skólans. Í Flensborgarskólanum er lögð áhersla á að: 

  • Umræður og verkefni um jákvæð samskipti séu eðlilegur hluti af skólastarfi m.a. með því að:
    • Skýr stefna skólans sé kynnt sem víðast.
    • Verkefni í LKN 112 fjalli m.a. um samskipti með klípusögum, veggspjöld o.þ.h.
  • Efla og viðhalda vitund allra aðila um mikilvægi jákvæðra samskipta m.a. með því að:
    • Kennarar séu vakandi fyrir því að taka upp umræðu um jákvæð samskipti í hópum.
    • Samskiptadagar, gleðidagar eða brosdagar séu einu sinni á önn þar sem fram fari þverfagleg umræða.
  • Skólinn sé eftirsóttur vinnustaður fyrir alla nemendur og starfsfólk m.a. með því að:
    • Hlýlegt og hvetjandi andrúmsloft þar sem gagnkvæm virðing er ríkjandi.
  • Stuðlað sé að fjölbreyttu og heilbrigðu félagslífi nemenda og starfsfólks m.a. með þvi að:
    • Sköpuð séu tækifæri og svigrúm til að sinna félagslífi.
  • Unnið sé að því að skapa öruggt, jákvætt og hvetjandi námsumhverfi m.a. með því að:
    • Starfsfólk sé vakandi fyrir einelti og öðrum neikvæðum samskiptum og bregðist við á viðeigandi hátt.


Heimildir

Við gerð þessarar viðbragðsáætlunar var stuðst við eftirfarand heimildir:

  1. Arnheiður Gígja Guðmundsdóttir, Sif Einarsdóttir og Vanda Sigurgeirsdóttir. (2007). Hægist mein þá um er rætt. Uppeldi og menntun, 16. árg., 1. hefti, 2007.
  2. Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, Ása Guðbjörg Ásgeirsdóttir og Þóra Magnea Magnúsdóttir. (2004). Einelti og kynferðisleg áreitni á vinnustöðum - forvarnir og viðbrögð. Leiðbeiningabæklingur. Reykjavík: Vinnueftirlitið. 
  3. Heimasíða VR www.vr.is , sótt 24.4. 2008 af: http://www.vr.is/index.aspx?GroupId=227
  4. Reglugerð um aðgerðir gegn einelti á vinnustað nr. 1000/2004.
  5. Roland, Erling, og Vaaland, Grete, S. (2001). Saman í sátt - Leiðir til að fást við einelti og samskptavanda í skólum. Reykjavík: Námsgagnastofnun.
  6. Sara Hlín Hálfdánardóttir. (2004). Samstaða gegn einelti á vinnustöðum. Reykjavík: SFR - Stéttarfélag í almannaþjónustu.
  7. Sharp, Sonja, og Smith, Peter, K. (Ritstj.). (2000).  Gegn einelti: handbók fyrir skóla. Reykjavík: Æskan.


 

Flensborgarskólinn | Hringbraut 10 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 0400 | Fax 565 0491 | flensborg@flensborg.is