![]() |
Hópráðgjöf - námskeið
Á hverjum vetri eru haldin ýmis námskeið fyrir stærri og smærri hópa. Þau eru auglýst hverju sinni á heimasíðu námsráðgjafa og á auglýsingaskjá skólans.
Námstækninámskeið
Lögð er áhersla á að styðja nemendur í þeirri vinnu að tileinka sér góð vinnubrögð í námi. Helstu þættir sem farið er í eru:
- Tímastjórnun og skipulagning
- Markmiðssetning
- Lestraraðferðir
- Glósugerð og hugkort
- Prófundirbúningur og próftaka
Prófkvíðanámskeið
Á þessum námskeiðum er farið í einkenni og birtingaform kvíða. Nemendur eru aðstoðaðir við að greina eigin einkenni og bregðast við þeim. Mikil áhersla er lögð á gildi slökunar við prófkvíða og fá nemendur þjálfun í slökun.
Sjálfsstyrkinganámskeið
Markmið þessara námskeiða er að styðja einstaklinginn í því að byggja upp góða sjálfsmynd og stuðla þannig að bættri líðan og árangri þátttakenda. Jákvæð sjálfsmynd er mikilvægur þáttur til að ná árangri í námi og einkalífi. Sjálfsskoðun er grunnurinn að þeim þáttum sem farið er í en helstu þættir námskeiðsins eru:
- Hver er ég?
- Hvernig er minn lífsstíll?
- Hvernig námsmaður er ég?
- Hvað hefur áhrif á velgengni mína og líðan?
- Hvert stefni ég?



