
Stefna Flensborgarskólans varðandi nemendur með leshömlun
Flensborgarskólinn í Hafnarfirði býður nemendur með leshömlun velkomna til náms í skólanum. Skólinn lítur á leshömlun sem sértækar námsþarfir og leggur áherslu á að veita nemendum sérstaka þjónustu til að ná árangri í námi þrátt fyrir hömlun sína. Slík þjónusta getur verið í formi breyttra kennsluhátta, annars konar íhlutunar í kennslu, verkefnavinnu og við próftöku.
Leshömlun er fjölþætt taugafræðilegt ástand sem er óháð greind. Leshömlun getur haft margvísleg áhrif á nám en erfiðleikarnir birtast sérstaklega þegar unnið er með ritmál. Leshömlun getur birst í ýmsum myndum og því er mikilvægt að hver og einn fái aðstoð við sitt hæfi.
Tilgangurinn með þjónustu við leshamlaða nemendur er að veita þeim sömu tækifæri og og öðrum til að nýta námshæfileika sína sem best. Forsenda ofangreindrar þjónustu er að fyrirliggi greining frá sérfræðingi svo hægt sé að koma til móts við þarfir hvers og eins á faglegan hátt.
Leiðir skólans til að ná til nemenda með leshömlun
Skólinn gerir sér far um að ná sem fyrst til nemenda með leshömlun. Helstu leiðir til að vekja athygli á þeirri þjónustu sem í boði er eru eftirfarandi:
-
upplýsingar á umsóknarblaði
-
skimunarpróf sem lagt er fyrir alla nýnema
-
upplýsingar í skólasjónvarpi um ýmisskonar stuðning
-
upplýsingar í kynningarbæklingi sem dreift er til nemenda.
Þegar nemandi með leshömlun skráir sig í skólann merkir hann í sérstakan reit á umsóknareyðublaðinu þar sem spurt er um sérþarfir ef hann óskar eftir þjónustu. Þegar nemandinn hefur fengið skólavist skilar hann greiningu til námsráðgjafa. Nemandi og námsráðgjafi fara í sameiningu yfir hvers konar aðstoð hentar viðkomandi. Æskilegt er að foreldrar/forráðamenn komi með á þann fund.
Hafi nemendur eða forráðamenn grunsemdir um leshömlun er mikilvægt að koma þeim upplýsingum á framfæri við námsráðgjafa. Einnig eru kennarar sem hafa grunsemdir um að nemendur þeirra eigi við slíka hömlun að stríða beðnir um að vísa viðkomandi til námsráðgjafa.
Skimun og greining
Að hausti er lagt fyrir skimunarpróf í stafsetningu fyrir nýnema þar sem reynslan sýnir að nemendur eru enn að greinast með leshömlun eftir að þeir hefja nám í framhaldsskóla. Tilgangurinn með þessu prófi er að kanna hvort veikleikar í stafsetningu bendi til að um leshömlun sé að ræða. Sé svo benda námsráðgjafar viðkomandi á sérfræðinga sem greina leshömlun. Vakni grunsemdir um leshömlun hjá eldri nemendum eiga þeir einnig kost á að fara í ofangreint skimunarpróf í samráði við námsráðgjafa.
Skimunarpróf á vegum skólans er nemanda að kostnaðarlausu en þurfi hann á frekari greiningu að halda þá ber viðkomandi þann kostnað sjálfur.
Námsráðgjafar halda utan um þau gögn er varða nemendur með leshömlun og sjá um að koma viðeigandi upplýsingum til kennara.
Að hausti er haldinn hópfundur fyrir þá nýnema sem skilað hafa inn greiningu um leshömlun. Þar verður farið í ýmislegt er varðar nám þeirra, réttindi og skyldur í tengslum við þá þjónustu sem í boði er innan skólans.
Stuðningur
Áfangar og stytttri námskeið
Nám 193
Um er að ræða áfanga sem ætlaður er nemendum sem fengið hafa greiningu um leshömlun. Áfanginn er í boði einu sinni á skólaári. Markmiðið með honum er tvíþætt. Annars vegar er lögð áhersla á þjálfun í lestri og meðferð móðurmálsins. Hins vegar er lögð áhersla á skilning nemandans á eigin vanda, sjálfsstyrkingu og námstækni til að honum megi farnast sem best í námi.
Námskeið
Skólinn býður stutt námstækninámskeið sem sniðin eru að þörfum nemenda með leshömlun. Farið verður í þætti eins og glósutækni, gagnvirkan lestur, tímastjórnun, greiningu á námsvenjum og gerð hugtakakorta. Markmiðin með slíkum námskeiðum er að efla sjálfsmynd nemandans og styrkja hann sem námsmann.
Persónulegur stuðningur
Viðtöl hjá námsráðgjafa
Nemendum gefst tækifæri á að koma í viðtöl til námsráðgjafa til að fá stuðning og aðhald við námið. Stefnt er að því að námsráðgjafar hitti nemendur með leshömlun a.m.k. einu sinni til tvisvar á önn til að fara yfir stöðu hvers og eins. Nemendum er að sjálfsögðu velkomið að leita til námsráðgjafa hvenær sem er þar fyrir utan.
Sjálfshjálparhópar leshamlaðra
Markmiðið er að veita nemendum með leshömlun tækifæri á að hittast í fámennum hópum. Þar geta þeir miðlað reynslu og veitt hver öðrum stuðning í samvinnu við námsráðgjafa.
Tilhliðrun vegna eininga
Sé fullreynt að nemandi nái ekki tökum á tilteknu námsefni vegna hömlunar sinnar hefur hann rétt á að sækja um undanþágu til skólameistara enda segir svo í Aðalnámskrá framhaldsskóla frá 1999. Nemandi þarf þó að taka aðra áfanga í staðinn þannig að tilskyldum einingafjölda sé náð.
Aðstoð í námi
Kennarar við Flensborgarskólann leitast við að haga kennsluháttum sínum á þann veg að þeir henti leshömluðum nemendum ekki síður en öðrum nemendum. Má þar nefna hópvinnu, umræður í kennslustundum og vinnu með hugtakakort. Ennfremur geta nemendur með leshömlun átt kost á eftirfarandi aðstoð:
-
ljósrit af glærum
-
glósuvinur
-
hljóðritun í kennslustundum
-
lengri skilafrestur á skammtímaláns bókum á bókasafni skólans
-
hljóðbækur
-
tölvuforrit
-
aðstoð við heimanám
Aðstoð vegna próftöku
Skólinn býður nemendum með leshömlun upp á möguleika á tilhliðrunum við lokapróf án þess þó að draga úr prófkröfum varðandi námsmarkmið. Þessir þættir eru einnig í boði í skyndiprófum þar sem því verður komið við. Helstu þættir stuðnings geta verið eftirfarandi:
-
lengri próftími
-
breytt letur / stækkað letur
-
litaður pappír
-
munnleg próf
-
aðstoð við að lesa spurningar á prófi
-
ritari í prófum
-
próf lesið á hljóðsnældu
-
próftaka á tölvu
-
próftaka í fámenni eða einstaklingslega
Námsráðgjafar eru til samráðs og stuðnings við nemendur og kennara við framkvæmd aðstoðar vegna leshömlunar nemenda.
Fræðsla fyrir kennara
Mikilvægt er að viðhalda þekkingu og þróun varðandi kennslu og úrræði fyrir nemendur með leshömlun. Það verður gert með því að:
-
Halda námskeið á þriggja ára fresti um eðli og áhrif leshömlunar og styðja þannig kennara í því að koma til móts við þarfir nemenda með leshömlun.
-
Halda fræðslufund árlega þar sem rædd eru málefni nemenda með leshömlun. Kennarar geta þannig miðlað af reynslu sinni um þau úrræði sem nýtast nemendum hvað best.
-
Kennarar eiga einnig kost á að leita einstaklingslega til námsráðgjafa og sérkennara skólans vegna fræðslu um leshömlun.


