![]() |
Hvað viltu verða?
Þessari spurningu velta framhaldsskólanemendur gjarnan fyrir sér. Fjölbreytni framhaldsnáms hefur aukist mjög á undanförnum árum. Mikilvægt er því að skoða vel hug sinn og möguleika til náms.
Markmið
Mikilvægt er að vita hvert maður stefnir og setja sér ákveðin markmið. Sá sem hefur skoðað áhugasvið sitt, hæfileika og leikni á auðveldara með að finna sig í náminu og ná árangri heldur en sá sem ekki veit hvert hann stefnir.
Mikilvægar spurningar
- Hvar vil ég vera eftir 10 ár?
- Hvað þarf ég að gera til þess?
Þegar maður veltir fyrir sér vali á námi og störfum er gott að skoða þætti eins og:
- Hver er ég?
- Hvert stefni ég?
- Hvað finnst mér skemmtilegt?
- Hvar nýt ég mín best?
- Hvernig vinnuumhverfi vil ég hafa?
- Hvað legg ég ástæðu á?
- Sjálfstæði
- Samstarf
- Áhættu
- Öryggi
- Starfsframa
- Virðingu
Þessum og fleiri spurningum er vert að velta fyrir sér þegar hugað er að framhaldsnámi og störfum.
Áhugasviðsgreiningar
Við bjóðum nemendum upp á að taka áhugasviðsgreiningar og leiðbeinum um val á námi og störfum. Við hvetjum nemendur eindregið til að nýta sér þá þjónustu.



