![]() |
Nemendavernd
Nemendavernd er í höndum Nemendaverndarráðs Flensborgarskólans. Í raun er hún heiti yfir þrjú verkefni. Það er sjálft nemendaverndarráðið, áfallaráð og forvarnamál.
Helstu viðfangsefni ráðsins verða að fjalla um mál nemenda sem þurfa á sérstökum úrræðum að halda í námi. Ásamt því verður umfjöllun um félags- og tilfinningamál sem upp koma meðal einstaklinga og hópa. Nemendaverndarráð mótar stefnu og viðbrögð skólasamfélagsins við áföllum s.s. dauðsföllum, slysum og alvarlegum veikindum. Einnig er það hlutverk ráðsins að móta stefnu í forvörnum og viðbrögð við einelti. Þeir sem vísa málum til ráðsins geta nálgast eyðublöð á skrifstofu skólans og skilað þeim þangað merkt ráðinu. Fara skal með öll mál sem ráðið fjallar um sem trúnaðarmál.
Í nemendaverndarráði sitja:
Einar Birgir Steinþórsson, skólameistari
Magnús Þorkelsson, aðstoðarskólameistari
Helga Valtýsdóttir, námsráðgjafi
Sunna Þórarinsdóttir, námsráðgjafi
Guðmundur G. Brynjólfsson, félagslífsfulltrúi
Hrafnkell Tumi Kolbeinsson, forvarnafulltrúi
Halldóra Jóhannesdóttir, fjarvistastjóri
Hólmfríður Sigþórsdóttir, kennari
Þórunn Andrésdóttir, lestrarráðgjafi



