![]() |
Umsjón
Allir nemendur Flensborgarskólans eru með umsjónarkennara. Þeim er skipt í nokkar hópa.
Umsjón með hópi. Við upphaf haustannar er öllum nemendum skólans raðað í 20-30 nemenda hópa. Um nýnema og útskriftarnema gilda aðrar reglur. Umsjónarkennarinn er alla jafna kennari þessara nemenda. Þeir eru svo í umsjón hans bæði á haustönn og vorönn en fá líklega nýjan umsjónarkennara á næstu haustönn. Meginhlutverk umsjónarkennarans er að fylgjast með skólasókn, vera til ráðgjafar og leiðsagnar og vera tengiliður nemenda og skóla.
Nýnemar eru í svipuðu kerfi en á haustönn eru þau vikulega í tíma sem kallast umsjón þar sem þeim eru kenndar reglur skólans o.fl. Umsjónarkennari nýnema aðstoðar þau þegar þau velja fyrir vorönn á fyrsta ári.
LOK umsjón er umsjón með útskriftarhópi hverrar annar. Þau hittast vikulega. Í tímunum er Dimmission undirbúin, þau fá námskynningar o.fl. Kennari þessa hóps er umsjónarkennari hans og starfar sem slíkur sbr. hér að ofan.
Valleiðbeinendur er svo hópur kennara sem ekki er með umsjónarhóp en leiðbeinir nemendum við val næstu annar. Þeir mynda teymi undir stjórn sviðsstjóra og sér hvert teymi um ákveðinn hóp nemenda. Þessu verkefnin er nánar lýst í fréttablöðum skólans.



