Flensborgarskólinn - Fræðslusjóður



Fræðslusjóður Jóns Þórarinssonar
Fræðslusjóður Jóns Þórarinssonar hefur það hlutverk að styrkja til framhaldsnáms nemendur sem hafa lokið stúdentsprófi eða öðru lokaprófi frá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði. Fræðslusjóðurinn var stofnaður með erfðaskrá Önnu Jónsdóttur ljósmyndara í Hafnarfirði, sem lést 4. júlí 1987. Anna var dóttir Jóns Þórarinssonar skólastjóra og fyrri konu hans Lauru Pétursdóttur Hafstein. Jón var skólastjóri Flensborgarskólans frá upphafi hans sem gagnfræðaskóla 1882 til 1908, en tók þá við nýstofnuðu embætti fræðslumálastjóra sem hann gegndi til dauðadags 12. júní 1926. Anna Jónsdóttir fæddist 16. desember 1892. Hún lærði ljósmyndaiðn og starfaði lengi við iðngrein sína í Hafnarfirði. Hún sýndi Flensborgarskólanum alla tíð mikla ræktarsemi og fylgdist af áhuga með starfsemi hans. Hún var ógift og barnlaus og ákvað löngu fyrir andlát sitt að láta skólann og nemendur hans njóta góðs af því sem hún kynni að láta eftir sig. Í erfðaskrá hennar var ákvæði um að eigur hennar skyldu mynda sjóð er bæri nafn Jóns Þórarinssonar og væri varið "til að styrkja til framhaldsnáms efnilegt námsfólk sem lokið hefur fullnaðarprófi við Flensborgarskólann í Hafnarfirði".

Fyrsta úthlutun úr sjóðnum fór fram á hundraðasta fæðingardegi Önnu, 16. desember 1992, en síðan hefur úthlutunin farið fram við brautskráningu fyrir jól. Skólanefnd Flensborgarskólans er jafnframt stjórn Fræðslusjóðsins. Umsóknir verða teknar fyrir og afgreiddar á fundi stjórnarinnar í byrjun desember. Sjóðsstjórnin getur skipt styrknum ef svo ber undir og hefur það verið gert í nokkur skipti af þeim nítján (2010) sem úthlutun hefur farið fram. Styrkuupphæð fyrir árið 2010 var kr. 250.000.

Umsóknir um styrk úr sjóðnum þurfa að berast til Flensborgarskólans, Pósthólf 240, 222 Hafnarfirði, og er jafnan auglýst við lok nóvember ár hvert. Umsóknum þarf ekki að skila á sérstöku eyðublaði, en þeim þurfa að fylgja staðfest gögn um námsferil eftir að námi í Flensborgarskólanum lauk auk annarra upplýsinga sem umsækjendur telja að styðji þeirra umsókn. Nánari upplýsingar gefur skólameistari í síma 565-0400 og einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið flensborg@flensborg.is.

 

Flensborgarskólinn | Hringbraut 10 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 0400 | Fax 565 0491 | flensborg@flensborg.is