Flensborgarskólinn - Umsókn



Námsstyrkur
Auglýst er eftir umsóknum um styrk úr Fræðslusjóði Jóns Þórarinssonar. Fræðslusjóðurinn hefur það hlutverk að styrkja til framhaldsnáms nemendur sem hafa lokið stúdentsprófi eða öðru lokaprófi frá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði.

Styrkur úr sjóðnum verður veittur í tuttugasta og fyrsta sinn við brautskráningu frá Flensborgarskólanum í desember 2011. Styrkupphæð ársins 2011 er 220 þúsund krónur. 

Umsóknir um styrkinn þurfa að berast til Flensborgarskólans, pósthólf 240, 222 Hafnarfirði en dagsening verður auglýst síðar. Venjulega er það í lok nóvember.  Umsókn þarf ekki að skila á sérstöku eyðublaði en henni þurfa að fylgja staðfest gögn um námsferil eftir að námi í Flensborgarskólanum lauk ásamt öðrum gögnum sem umsækjandi telur að styðji umsóknina. Umsókn má skila rafrænt.
Umsóknarfrestur rennur út á miðnætti 28. nóvember 2011.

Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni eða hjá skólameistari í síma 565-0400. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netfangið flensborg@flensborg.is.

Stjórn Fræðslusjóðs Jóns Þórarinssonar

Flensborgarskólinn | Hringbraut 10 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 0400 | Fax 565 0491 | flensborg@flensborg.is