Stærðfræðikeppni
Flensborgarskólans fyrir grunnskólanema

Því miður er alls óvíst hvort unnt verður að halda áfram með þessa keppni
skólaárið 2011 – 2012.

Description: horizontal rule

Stærðfræðikeppni Flensborgarskólans
fyrir grunnskólanema
skólaárið 2010-2011.
 

Stærðfræðikeppni Flensborgarskólans fyrir grunnskólanema fór fram í fimmtánda sinn miðvikudaginn 16. mars 2011 kl. 15:00 í Flensborgar-skólanum. Keppnin er fyrir nemendur í 8., 9. og 10. bekk grunnskólanna. Keppendur voru alls 98 sem er tölvert minni þátttaka en undanfarin ár.

Kíwanisklúbbarnir Eldborg, Hraunborg og Sólborg í Hafnarfirði veittu vegleg verðlaun til þeirra þriggja efstu í hverjum árgangi í Hafnarfirði en auk þess fengu allir sem lentu í tíu efstu sætunum í hverjum árgangi viðurkenningar frá Flensborgarskólanum.

Fyrirtækið Netorka styrkir framkvæmd keppninnar með veglegum hætti.


Úrslit voru kynnt og verðlaun afhent í kaffisamsæti í Hamarssal Flensborgarskólans þriðjudaginn 29. mars kl. 17:30.
Til verðlaunaafhendingar var boðið þeim tíu efstu í hverjum árgangi ásamt foreldrum og kennurum.

Eins og áður var öðrum framhaldsskólum boðið að nýta keppnina á sínu heimasvæði.
Að þessu sinni héldu eftirtaldir framhaldsskólar keppnina á sama tíma:
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ, Fjölbrautaskóli Vesturlands, Fjölbrautaskóli Suðurnesja, Fjölbrautaskóli Suðurlands og Menntaskólinn á Akureyri.


Úrslit keppninnar 2011 má finna hér.

Nöfn allra verðlaunahafa í Hafnarfirði frá upphafi má finna hér

Upplýsingar um Stærðfræðikeppni Flensborgarskólans fyrir grunnskólanema gefur Einar Birgir Steinþórsson í  gegnum netfangið ebs@flensborg.is

                                                                                                                                                                             Skólameistari
Verkefni úr öllum keppnum má finna hér.


Til baka