Stærðfræðikeppni
Flensborgarskólans fyrir grunnskólanema

Næsta stærðfræðikeppni verður væntanlega miðvikudaginn 16. mars 2011.

horizontal rule

Stærðfræðikeppni Flensborgarskólans
fyrir grunnskólanema
skólaárið 2009-2010.
 

Stærðfræðikeppni Flensborgarskólans fyrir grunnskólanema var haldin í fjórtánda sinn miðvikudaginn 10. mars 2010 kl. 15:00 í Flensborgarskólanum.

Sama keppni var einnig haldin í eftirtöldum framhaldsskólum: Fjölbrautaskóla Suðurlands, FjölbrautaskólaSuðurnesja, Fjölbrautaskóla Vesturlands, Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Menntaskólanum á Akureyri   og Menntaskólanum í Kópavogi.  Hver skóli er með sjálfstæða framkvæmd en keppnisdæmin  sameiginleg.

Í Hafnarfirði mættu 210 nemendur og tóku þátt í keppninni, 73 í 8. bekk, 88 í 9. bekk og 49 í 10. bekk . Þetta er svipuð heildarþátttaka og undanfarin ár en alltaf eru sveiflur milli bekkja. 

Úrslit keppninnar 2010 má finna hér.

 

Nöfn allra verðlaunahafa í Hafnarfirði frá upphafi má finna hér

 

Upplýsingar um Stærðfræðikeppni Flensborgarskólans fyrir grunnskólanema gefur Einar Birgir Steinþórsson í  gegnum netfangið ebs@flensborg.is

                                                                                                                                                                             Skólameistari
Verkefni úr öllum keppnum má finna hér.


Til baka