|
Góð mæting var á vel heppnaðan fund Heimilis og skóla og mennta- og menningamálaráðuneytisins um foreldrasamstarf á framhaldsskólastigi síðastliðinn föstudag. Hátt í áttatíu manns mættu á fundinn sem haldinn var í menntamálaráðuneytinu. Dagskráin var þéttskipuð en þar mátti finna fjölbreytt og fróðleg erindi sem féllu í góðan jarðveg og voru viðstaddir afar ánægðir með fundinn sem ætlað var að styrkja og efla foreldraráð framhaldsskóla í starfi.
Fundargerð er að finna hér í viðhengi.
Til baka . . .
|