|
Þriðjudaginn 26. janúar kl. 17:00-19:00 verður kynning á námsframboði þrettán framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu. Kynningin fer fram í aðalsal Flensborgarskóla og er fyrir nemendur í 10. bekk í grunnskólum Hafnarfjarðar og foreldra þeirra. Hver framhaldsskóli verður með kynningarbás þar sem námsframboð og inntökuskilyrði verða kynnt.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir 10. bekkinga og foreldra þeirra til að kynna sér hvað framhaldsskólarnir hafa upp á að bjóða.
Námsráðgjafar grunnskólanna í Hafnarfirði
Námsráðgjafar Flensborgarskóla
Þeir framhaldsskólar sem verða með kynningarbás eru:
Borgarholtsskóli Fjölbrautarskólinn í Breiðholti Fjölbrautarskólinn við Ármúla Fjölbrautarskólinn í Garðabæ Flensborgarskólinn í Hafnarfirði Hraðbraut Iðnskólinn í Hafnarfirði Kvennaskólinn í Reykjavík Menntaskólinn í Kópavogi Menntaskólinn í Reykjavík Menntaskólinn við Hamrahlíð Tækniskólinn Verslunarskóli Íslands
Fjölmiðladeildin verði með útsendingu í útvarpinu (FM97.2) og á vefveitunni.
Til baka . . .
|