Flensborgarskólinn - Forsíða
Séð inn í Hamar, nýjan sal skólans 2006

Fréttir > 4. febrúar 2010
Hugsaðu áður en þú sendir

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2010 verður haldinn 9. febrúar næstkomandi undir yfirskriftinni „Hugsaðu áður en þú sendir”. Í tilefni dagsins stendur SAFT fyrir málþingi í Skriðu, aðalbyggingu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands v/Stakkahlíð, kl 14.30-16.30. Á málþinginu verður m.a. fjallað um: netið og vinasöfnun á félagsnetsíðum, myndbirtingar, rafræn tengsl og persónusköpun ungs fólks, friðhelgi og persónuvernd, lögreglurannsókn mála og veitt verða verðlaun í nemendasamkeppni. Annars er nánari dagskrá að finna hér að neðan og í viðhengi. 

Fundarstjóri er Páll Óskar Hjálmtýsson.

Dagskrá:

  • Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, setur málþingið
  • Hrannar Pétursson, forstöðumaður almennatengsla hjá Vodafone: „Ringulreiðarmálið” - Myndbirtingar barna og unglinga á netinu. Hvað segja netþjónustuaðilar?
  • Einar Norðfjörð og Anna Kristína Lobers, ungmennaráði SAFT: Reynsluheimur unga fólksins: Vinasöfnun og myndbirtingar á félagsnetsíðum
  • Halldór J. Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft Íslandi: Friðhelgi á jaðri netsins
  • Jónas Kristjánsson, ritstjóri og hestamaður: Þolmörkin færðust til
  • Salvör Kristjana Gissurardóttir, lektor í upplýsingatækni og tölvunotkun í námi og kennslu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands: Netsiðferði - Persónuvernd og pólitískur áróður
  • Sólveig Jakobsdóttir, Rannsóknarstofu í upplýsingatækni og miðlun, Menntavísindasviði Háskóla Íslands: Félagsnet í fræðilegu samhengi: Rafræn tengsl og persónusköpun ungs fólks á netinu
  • Sigríður J. Hjaltested, aðstoðarsaksóknari, Lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu:  Rannsókn mála tengd netinu
  • Sjöfn Þórðardóttir, formaður Heimilis og skóla, og Emil Einarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Nýherja, veita verðlaun í nemendasamkeppni um gerð jafningjafræðsluefnis um jákvæða og örugga netnotkun
  • Pallborðsumræður 
  • Veitingar

Málþingið verður sent beint út á netinu. 

Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu SAFT (www.saft.is).



Til baka . . .

Flensborgarskólinn | Hringbraut 10 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 0400 | Fax 565 0491 | flensborg@flensborg.is