Flensborgarskólinn

Microsoft Power Point 2000

Glærusýningarforrit – einfaldar leiðbeiningar

Unnar af Magnúsi Þorkelssyni

 

Skref fyrir skref

 

1

Grunntaktar

Power Point er einfalt í notkun og byggir á sama skipanakerfi og hin Office forritin.  

Þú opnar það í Start – Programs. 

Þú getur valið um hvort þú vilt opna skrá sem þú áttir áður (Open existing), algerlega auða skrá (Blank presentation) og þá ekki með neina forma eða bakgrunna; skrá sem gefur þér kost á að velja mismundandi bakgrunna (Design templates) eða ákveðnar rútínur (AutoContent Wizard). 

Blank þýðir að þú færð upp glugga sem er alveg auður og ekki með neinum litum í grunninn. 

Design templates þýðir að þú getur valið úr úrvali bakgrunna sem þó þarf að velja með hliðsjón af því hvort þú ætlar að prenta út eða sýna af skjá. 

Þetta er kosturinn sem flestir velja.  

AutoContent þýðir að þú færð í raun röð af glærum með ábendingum um inntak – allt eftir því hvers konar efni þú ætlar að vera með. 

Hér þarf að passa sig því þú gætir ætlað að vera með eina glæru enn í röðinni geta þær verið fimmtán!

Forritið er ætlað fyrir glærusýningar.  Þú þarft að vega og meta hve mikið þú getur sett á glæruna og þar gildir sama reglan og um suðu á fiski – það er minna en þú heldur!  Ágætt er að spyrja nemendur!

Skref fyrir skref

 

2

Farðu þessa leið:

1)             Opnaðu forritið og veldu Design Template.

2)             Veldu þér bakgrunn.

3)             Veldu þér Layout eða umbrot – fyrsta myndin er fyrir forsíðu og hinar eru fyrir glósur – við skoðum ýmsa möguleika þeirra síðar.  Ef þú smellir einu sinni á myndina þá sérðu hvernig hún er hugsuð.

4)             Veldu t.d. Bulleted list.  Athugaðu að leturgerð og leturstærð miðast við ákveðna heildræna mynd þannig að ef þú skiptir um bakgrunn þá skiptir þú líklega um letur líka.

5)             Mundu að vista reglulega á heimasvæði þínu!

6)             Nú setur þú fyrirsögn í efsta rammann – ath. að textinn Click to add hverfur þegar þú ferð að skrifa inn

7)             Síðan kemur textinn fyrir neðan í næsta ramma og í hvert skipti sem þú ýtir á enter kemur nýtt merki fremst í línuna.

8)             Þú getur haft undirlið með því að ýta á  TAB takkann og notar örvarnar efst í glugganum til að hopa tilbaka

9)             Glugginn þinn er þrískiptur.  Lengst til vinstri er gluggi sem sýnir einungis textann í glærusafninu þínu.  Þar sjást einnig skilin á milli glæra, en allt er með einföldum texta og án allrar mótunar.   Neðst er gluggi sem heitir Notes og þar er hægt að setja glósur fyrir þig en þær verður að prenta út sérstaklega til að nýtast þér.  Stóri glugginn sýnir glæruna eins og hún lítur út.

10)         Til að bæta við glærum þá velur þú í efstu línu Insert – new slide eða myndina undir FILE

11)         Nú býrð þú til smá sýningu og prófar þig áfram innan forritsins

12)         Viltu setja inn myndir? Þá velur þú Insert – picture – clip art ef þú vilt velja úr myndasafninu frá Office eða Insert-picture – from file ef þú átt mynd á skrá.  Þú getur sótt myndir út á netið víða og vistað hjá þér eða skannað inn myndir og vistað þær á þinn disk. 

13)         Undir insert getur þu einnig valið sitt hvað annað en ekki reyna annað í bili en það sem hentar þér.

14)         Þegar þú ert búin/n að vinna það sem þú vilt þá getur þú prentað út.  Það gerist þannig að þú velur File – print – og nú þarf að lesa gluggann vel.  Efst velur þú prentara – og ef þú ætlar að prenta á annað en venjulegan pappír þá þarft þú að fara í properties og þar ræðst það af prentaranum sem þú velur hvernig glugginn lítur út.  Það er ekkisama hvort þú vilt prenta úr laser prentara eða bleksprautu prentara og það er ekki sama hvernig glærur þú notar.   Neðarlega getur þú valið í glugganum Print What hvort þú ætlar að prenta út heila mynd af glærunni (þegar þú velur slides ath. að allir formar í Power Point eru með landscape uppsetningu), setja nokkrar glærur á blað (3-4-6) Handouts; Notes Pages eða mynd af glærunni með glósum og outline sem er glugginn lengst til vinstri.  Grayscale afnemur áhrif litanna og pure black and white þýðir að þegar maður prentar þá fer allur bakgrunnur af.  Include animations þýðir að hún prentar mynd af hreyfimyndum með.

15)         Nú skaltu fikta þig áfram og sjá hvernig einföldustu hlutir vinna.  Þú gætir gert kynningu fyrir  skólann og notað t.d. myndir af heimasíðu skólans og önnur gögn.  Power Point er einfalt í notkun en það byggir á fyrirfram mótuðum formum svo það þarf að læra að taka tillit til þeirra og nota þá líka.

 

Skref fyrir skref

 

3

 

Gaman að skoða:

ü                            Undir file er hægt að vista á marga vegu.  Save As býður m.a. upp á að glæra sé vistuð sem mynd (jpg) og þá má t.d. nota hana á upplýsingaskjáina.  Þá er Save as web page en þar með verður til vefsíða.  En ATH. forritið býr einnig til möppu með formanum, myndum eða öðru sem fylgir glærunni eða glærusafninu.   Þegar síðan væri flutt út á netið þá þarf einnig að flytja það með.

ü                            Undir Edit er flest þetta vanalega sem finna má.

ü                            Ath. að ef þú skrifar vefslóð og hefur http:// fremst ( http://www.flensborg.is ) þá kemur hún með bláu og undirstrikuð á skjáinn og verður virk (sama gildir um mailto skipunina -  mailto:maggi@flensborg.is ).  Þannig er hægt að smella á slóðina og ef tölvan er nettengd þá leitar hún að vafra og finnur viðkomandi síðu.  Sama er einnig hægt að gera með skjal í tölvunni

ü                            Undir view er hægt að velja Normal sem er glugginn sem lýst var að ofan; slide sorter sem er yfirlit yfir allar glærurnar í tilteknu safni og þar smellir þú á þá sem þú vilt vinna við eða dregur þær í þá röð sem þú vilt hafa eða jafnvel eyðir þeirri sem þú vilt ekki hafa.

ü                            View – Notes page er með glósunum undir glærunni sem er efst og hægt er að setja þá viðbótarglósur í gluggann undir glærunni.

ü                            View – slides show setur upp á gluggann glæruna og þegar þú ýtir á enter eða músarhnappinn þá færist glæran.

ü                            View – master breytir grunnskipulagi glærunnar

ü                            View – header/footer gerir þér mögulegt að setja haus efst á glæruna (t.d. nafn skólans) eða setja nafn þitt neðst, blaðsíðu númer, dagsetningu eða hvatningarorð.

ü                            Insert, Format og Tools vinna nákvæmlega eins í öllum Office forritum.

ü                            Slide show er mest spennandi kosturinn og þar fara galdrarnir að gerast – ef þú vilt.  Nú skaltu bregða á leik en ath. að þetta vinnur vitaskuld einungis ef þú ert með sýningu í skjávarpa. 

ü                            View Show setur glærusýninguna af stað.

ü                            Þessi gluggi kemur þegar þú velur set up show en þetta notar þú fyrst og fremst þegar þú þarft að nota skjávarpa frá öðrum – hitt skiptir minna máli að öllu jöfnu – projector wizard stillir sig inn á skjávarpann og þú fylgir fyrirmælum hans.

ü                            Þessi hjálpar þér að setja upp sýninguna.  Þú hakar í Check to animate og þá birtast hlutar glærunnar skref fyrir skref þegar þú ýtir á enter eða smellir músarhnappi. Order and timing stýrir í hvaða röð hlutir birtast, effects ef þú vilt t.d. láta heyrast hljóð þegar glæra eða texti birtist og multimedia settings ef þú ert t.d. með sívirka sýningu sem gengur látlaust.  Preview sýnir þér hvernig þetta vinnur allt saman án þess að fara út úr þessum glugga.

ü                            Slide Transition - Þessi gluggi leyfir þér að velja hvernig glæran kemur inn og hundurinn sýnir þér hvernig.  Prófaðu og veldu úr glugganum undir hundinum.  Annað skýrir sig sjálft.  Mundu að efst til hægri er valið hvort viðkomandi valkostur eigi við allar glærurnar eða einungis þessa.  Sound tengist því með hverskonar hljóðum glæran renni upp á skjáinn.

ü                            Preset animation er safn af aðferðum til að senda textann upp á skjáinn (flýgur inn frá hægri eða vinstri, leysist inn á skjáinn o.s.frv.);  Action Buttons er safn hnappa sem hægt er að hafa á skjánum til að stýra sýningunni; Hide slide gerir þér kleyft að taka eina og eina glæru til hliðar án þess að eyða henni.

ü                            Rehearse timings gerir þér mögulegt að forrita sýninguna þannig að forritið skipti sjálfvirkt um glærur eða texta, record narration þá er hægt að lesa inn texta eða tónlist undir sjálfvirkri sýningu, online broadcast gerir mögulegt að hafa sýningu á netinu.

ü                            Sjá einnig s.s. http://www.ismennt.is/not/maggi/grikkland.html

ü                            Sjá einnig s.s. http://www.ismennt.is/not/maggi/asterix.htm

ü                            Sjá einnig S-drif – möppu sem  heitir ppt

ü                            Svo er bara að reyna og vera óhrædd(ur)

ü                            Sjá einnig hér um Power Point og Skjásýningar