Ferðin til Gautaborgar – enn einu sinni!
Það
var mikil stemming og spenna fyrir ferð 3. flokks FH – karla fæddra 1990 - í lok desember 2006. Tilefnið var að þeir
voru að fara að keppa á Norden Cup í annað sinn en þetta mót hafði hópurinn
fæddir 1989 og ‘90 unnið árið áður. Þá hafði FH verið fyrsta liðið til að
Þeir
voru samt heldur syfjulegir því klukkan var um hálfsex að morgni annars í jólum
þegar lagt var í hann. Framundan var langt og strangt ferðalag því fljúga átti
kl. 8 og gert ráð fyrir að koma til Gautaborgar réttum tólf tímum síðar.
Með
13 manna hópi leikmanna voru 2 þjálfarar og níu pabbar og einn afi. Að auki kom
áhugasamur bróðir sem var búsettur í Svíþjóð sem og íslensk fjölskylda, búsett í
Gautaborg sem var okkur mjög innanhandar.
Ferðalagið
gekk eins og í sögu enda er þessi hópur vanur að ferðast við ýmis skilyrði og
aðstæður. Þegar komið var til Gautaborgar voru strákarnir fluttir á Scandic
Opalen sem er rétt við Ullevi og þar gistu þeir við kjöraðstæður. Pabbarnir
fóru á Rica hotel sem þykir heldur lakara en það var kannski bara eðlilegt.
Þeir voru ekki að gera annað en hvetja strákana sína!
Strax
27. des var einn leikur. Hann var við Irsta frá Svíþjóð og lauk með sigri FH 30
mörk gegn 14. Sigurinn var stór en segir ekki alla söguna. Áhugasamir segja FH
liðið ekki hafa sýnt nógan áhuga en það var kannski bara best fyrir sálarheill
andstæðinganna.
Daginn
eftir átti að keppa við Heid sem eru gamlir kunningjar frá Partille mótunum.
Menn komu einbeittir til leiks og með vaskri framgöngu Sigga Arnar í markinu og
sterkum varnarleik var staðan 4-0 eftir um 8 mínútna leik og spilaði Heid samt
hörkuvel. Engin Svíagrýla í þessum drengjum. Leiknum lauk svo með 11 marka
sigri 26-15 en munurinn var 8 mörk í hálfleik og varð minnstur 5 mörk í síðari
hálfleik. FH lék mestan hluta leiksins mjög vel og reyndu Heid menn ýmislegt
s.s. að taka Aron úr umferð og jafnvel Óla líka eða Björn en það dugði ekki
til. Samt fóru ótrúlega mörg góð færi í súginn m.a. tókst ekki að skora í
mörgum hraðaupphlaupum.
Seinni
leikur dagsins var við norska liðið Holmestrand. Þá lá ljóst fyrir að FH kæmist
áfram og þeir norsku höfðu tapað báðum sínum leikjum. FH kom líklega full
afslappað til leiks og lengi framan af höfðu Norðmennirnir í fullu tré við þá,
voru leikglaðir og brattir og gáfu sig alla í leikinn – sem verður ekki sagt um
FH-inga. Jafnt var á öllum tölum og FH elti frekar en hitt. Í hálfleik voru Norðmenn
yfir 13-12 og ljóst að Elvar þjálfari var allt annað en ánægður. Það átti að
hvíla lykilmenn og rúlla andstæðingunum upp en raunin var önnur. En í hálfleik
breyttist FH liðið og eftir nokkurn hasar var staðan á töflunni orðin 15-13 FH
í vil og þegar nokkuð var liðið á leik var munurinn orðinn 5 mörk og mestur
vindur úr þeim norsku. Leiknum lauk með sigri FH 23-18 og fóru menn nokkuð
sáttir af velli.
Nú
voru 8 liða úrslit framundan og var næsti leikur við norskt lið, Nordstrand,
strax 29. des. Drengirnir í Nordstrand komu einbeittir til leiks og það gerðu
okkar menn líka. Þeir héldu höfði í gegnum fyrri hálfleik sem var lengi vel
jafn og þéttur. Spiluðu eineittan varnarleik og öfluga sókn. Þá munaði mikið um
markvörslu Sigga sem fer langt með að vera maður mótsins. Hann tók víti og
hraðaupphlaup en ekki verður þó við öllu séð! Keyrt var á lykilmönnum framan af
en fimm mörkum munaði í hálfleik. Þegar líða tók á seinni hálfleik var munurinn
kominn í tólf mörk þegar mest var og nú leyfði Elvar þjálfari lykilmönnum að
hvíla og veitti ekki af. Björn Daníel var snúinn á fæti og með þesu móti fengu
flestir færi á að spreyta sig. Leiknum lauk með 9 marka sigri, 27-18.
Klukkan
átta voru svo undanúrslit en þar mættu FH-ingar liði frá Danaveldi sem heitir
Aab og er frá Álaborg. Þeir höfðu lent í öðru sæti í sínum riðli og unnið
nokkuð óvænt Gok frá Svíþjóð sem vann sinn riðil. Á sama tíma hafði það gerst
að Guif frá Eskilstuna komu mjög sterkt upp og unnu báða sína leiki á seiglu og
annan á bráðabana. Þeir fóru í úrslit og nú var spurning hvort FH eða Aab færi
í úrslit.
Leikurinn
hófst með miklum átökum og gekk hægt fyrir sig lengi. Jafnt á flestum tölum og
Siggi enn og aftur í banastuði í markinu! FH sýndi mikla stillingu gegn
ákveðinni taktik Dananna sem reyndu það sem þeir gátu til að pirra okkar menn.
Þeir beittu einnig þeirri snilldartaktik að láta okkar menn hanga fasta í sér
þegar þeir fóru inn á línuna og náðu m.a. að fiska út af Aron og Gauta þannig.
Karakter FH-inganna skilaði sér. Það var ekki dómaratuð og leiðindi heldur
hreinn handbolti. Nokkur hraðaupphlaup og mikil einbeiting gerðu það að verkum
að smátt og smátt seig FH framúr og sigurinn var nokkuð vís síðustu mínúturnar.
Engu að síður reyndu þeir dönsku maður á mann á lokasprettinum en leiknum lauk
engu að síður með 6 marka sigri – 27-21. Nú var staðan sú að lokaleikurinn yrði
við Guif frá Eskilstuna. Aab vann hins vegar leik sinn um þriðja sætið.
Umgjörð
úrslitaleikjanna er mjög glæsileg hjá Norden Cup. Leikmenn ganga í salinn,
liðin kynnt og svo eru þjóðsöngvar landanna leiknir. Þulur lýsir stöðunni og
kallar nöfn leikmanna sem skora o.s.frv. Engu að síður er þetta mjög sænskt mót
og salurinn stendur með sínum sænsku liðum. Ekki verður þó amast við
dómgæslunni neitt að ráði og afar vel er að öllu staðið.
Leikurinn
hófst með nokkrum þreyfingum og þó svo FH næði strax forystunni þá voru Guif
menn stutt á eftir og sýndu gamalkunna seiglu og dugnað. Með öflugri vörn,
góðri markvörslu og einbeittum sóknaraðgerðum náði FH að auka forystuna í 6-7
mörk en slæmur kafli gerði að verkum
að Guif komst skyndilega
inn í leikinn og varð munurinn þá minnstur tvö mörk. Í hálfleik stóð 12-15 FH í
vil. Karlarnir sem mynduðu stuðningshóp FH á bekknum báru sig vel og töldu að
þetta tækist nú allt en engu að síður var öllum ljóst að vel mátti halda á
spilum til að ekki færi illa.
Greinilegt
var að í hálfleik hafði verið talað út um málin. FH tók á málum af festu og jók
nú muninn þétt og jafnt. Eins og segir á síðu Norden Cup þá var smá áhyggjusvipur á
FH-ingum í hálfleik en „þá var bara gert eins og áður í
mótinu slegið í yfirgírinn“ og „pang, pang, pang“ þá var
staðan 15-21 og ljóst að sigurinn yrði ekki látinn af hendi. Guif menn sýndu
mikinn andlegan styrk og létu aldrei undan síga þó svo nokkrir sænskir áhorfendur
tíndust af pöllunum úrkula vonar. Þetta eru baráttunaglar og vita að uppgjöf er
aldrei til neins. En þrátt fyrir það máttu þeir láta í minni pokann. Þegar
Björn Daníel var hættur að geta stigið í fótinn þá Benni eða Kalli inn á og það
var sama hvaða samsetning FH liðsins var á gólfinu, Guif komst ekkert nær og
mátti horfa á töfluna við leikslok í stöðunni 22-30. FH hafði unnið Norden Cup
í annað sinn og í annað sinn var FH eina íslenska liðið sem hafði tekið þátt!
Verðlaun voru glæsilegur eignabikar, verðlaunapeningur vitaskuld og íþróttabúningur.
Sigurdans
var stiginn og fagnað gríðarlega! „Fögnum sigurvegurunum á sænska vísu“ kallaði þulurinn og salurinn stóð upp og hrópaði ferfalt
húrra.
Hvar
sem við vorum í tengslum við mótið fengum við að heyra ómælda aðdáun á þessum
piltum og leik þeirra. Þeir voru án efa besta – langbesta – liðið.
Í
lok leiks var Ólafur Guðmundsson valinn leikmaður leiksins hjá FH og Sigurður
Ágústsson hinn sívinnandi línumaður valinn verðmætasti leikmaður
úrslitaleiksins. Ekki skrýtið – íþróttamennskan í fyrirrúmi, sífelld vinnsla og
hörð stjórn á vörninni. Siggi átti þetta skilið.
Um
kvöldið var farið á Hard Rock og í keilu og á Gamlársdag var löng ferð
framundan heim. Það var tekið á móti drengjunum á viðeigandi hátt heima í
Kaplakrika, með stórum eldflaugatertum og ræðuhöldum frá formanni FH, Ingvari
Viktorssyni, formanni handknattleiksdeildar, Erni H. Magnússyni og Gunnari
Svavarssyni forseta bæjarstjórnar.


Hér
má sjá liðið og þjálfara þess: Efri röð frá vinstri: Sigursteinn Arndal,
aðstoðarþjálfari,
Á
myndinni hægra meginn eru þeir Óli og Siggi með hluta verðlauna sinna.
Og hér má sjá liðið ásamt
fylgdarmönnum, aðdáendum og aðstoðarnuddurum.
Ég
vil þakka þeim sem skipulögðu þessa ferð, sérstaklega þeim Sverri og Guðjóni,
sem og þeim samferðamönnum öllum. Þetta var frábært.
FH
þakkar einnig þeim stóra hópi styrktaraðila sem keypti af okkur auglýsingar og
studdi okkur á margan hátt.
En
fyrst og síðast vil ég fá að þakka þeim drengjunum fyrir frábæra framgöngu –
hvar sem var! Þið eruð hreinar perlur!
Ps
sjá einnig: Að
auki er að finna frásagnir og myndir á http://fhingar.is/Index/Forsida/ og
http://fhingar.is/Index/Handbolti/
og http://www.123.is/fh/ og http://blog.central.is/fh_partille.
Hér
að neðan er umfjöllun www.nordencup.com
um úrslitin:
061230:
Tredje tunga titeln i rad för FH
Tredje tunga
titeln i rad för FH
Isländska FH vann Norden Cup förra året och i
sommar vann man Partille Cup. Inför årets turnering ställde vi oss frågan; Kommer
det att ta ytterligare en skalp i Norden Cup? Svaret blev ett rungande JA!
Laget visade återigen en kapacitet som måste vara bland det bästa som finns i
världen i denna klass. Tar vi i för mycket? Nja kanske det, men onekligen har
man kvaliteter, främst i sin startsexa som skulle räcka väldigt lång oavsett
motstånd.
Finalen mot Guif inleddes med handbollsunderhållning från båda håll.
Eskilstunalaget stretade emot grymt bra och tack vara lagets bästa spelare,
målvakten Sebastian Bryngelsson, höll man på att skapa huvudbry för
favoriterna.
Ca 15 minuter in i första halvlek stod det fortfarande 8-7 till FH men därefter
fick man lucka och det med 3-4 bollar. Guifarna kom dock igen och krigade på
som bara den under tiden fram till halvtidsvilan. På tavlan lyste då 15-12 till
FH.
Direkt i andra halvleks inledning gjorde Guif två snabba och man kunde se lite
osäkerhet i Islänningarnas ögon. Men precis som tidigare i turneringen lägger
man in överväxeln och det säger bara pang, pang pang så står det snart 21-15.
Därefter är matchen körd för svenskarena och Islänningarna kan defilera i mål
och slutresultatet 30-22 och den andra raka Norden Cup triumfen är ett faktum.`
Bäst genomgående under turneringen och även i denna match har varit:
Spelfördelaren Björn Sverrisson, linjespelaren Sigurdur Agustsson, skytten och
allround liraren Aron Påtimarsson…vi kunde fortsätta räkna upp nästan hela
laget men nöjer oss med dessa tre.`
Förutom ett ruskigt bra lag visar även Islänningarna upp en attityd och en
lagmoral som gör en gammal älskare av lagidrott nästan tårögd.
Guif var målvakten Sebastian Bryngelsson grym, dessutom extraberöm till
högernian Mattias Zackrisson som främst inledningsvis var ruskigt rapp och
kvick.
Av Leif Lindenhall