UPPT 1VA03 (ST) - Upplýsinga- og tölvutækni
Viðfangsefni: Upplýsinga og tölvutækni - val.
Lýsing: Áhersla er lögð að þjálfa nemendur í að vinna úr hugmyndum sínum, innihald áfangans er breytilegt frá önn til annar og tekur mið af þeim nemendahópi sem skráður er í áfangann hverju sinni Megináhersla er lögð á að þjálfa nemendur í að nýta sér tölvu-og upplýsingatækni, bæði til gagns og ánægju. Lögð er áhersla á að nemandinn auki þekkingu og leikni tengdri viðfangsefninu og öðlist hæfni til sjálfstæðra vinnubragða á því sviði sem er til umfjöllunar hverju sinni.
Forkröfur: Engar
Forkröfur: Engar
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- að vinnuferlið er ekki síður mikilvægt eins og afraksturinn
- mikilvægi þess að nota ímyndunaraflið
- ólíkum möguleikum við tjáningu og úrlausnir verkefna
- fjölbreyttum aðferðum við lausn verkefna
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:·
- fara mismunandi leiðir
- átta sig á því að hugmyndir annarra eru oft ólíkar eigin hugmyndum
- vinna sjálfstætt og nýta hugmyndaflug í verkefnavinnu
- fylgja fyrirmælum við vinnslu verkefna
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- nýta óhefðbundin verkfæri til að koma þekkingu sinni til skila
- blanda saman mismunandi aðferðum til verkefnavinnu
- átta sig á mikilvægi skipulagðra vinnubragða
- bera virðingu fyrir eigin hugmyndum sem og annarra
- vinna sjálfstætt