Bækur.isÞann 1. desember 2010 var formlega opnaður nýr vefur Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns, bækur.is. Þar er hægt að skoða stafrænar endurgerðir gamalla íslenskra bóka, m.a. stór fjölbindaverk á borð við
Lovsamling for Island og
Íslenskt fornbréfasafn.
Forn Íslandskort í LandsbókasafniHér má meðal annars sjá fyrstu Íslandsgerðir á kortum, til dæmis kort Guðbrands Þorlákssonar Hólabiskups og kort sem Björn Gunnlaugsson gerði ásamt Olaf Nikolas Olsen.
Gegnir.isBókasafnsleit. Gegnir er samskrá íslenskra bókasafna.
Gljúfrasteinn hús skáldsinsGljúfrasteinn var heimili og vinnustaður Halldórs Laxness og fjölskyldu hans um hálfrar aldar skeið en er nú opinn almenningi sem safn.
Gutenberg-verkefniðProject Gutenberg eða Gutenberg-verkefnið miðar að því að gera ýmis rit, sem ekki eru háð hugverkaréttindum, aðgengileg almenningi í einföldu formi. Hér er meðal annars hægt að nálgast verk Shakespeares, þýddar glósur Leonardo Da Vincis og rit Knut Hamsuns auk þúsunda annarra verka. Af íslenskum ritum má nefna
Leiðarvísi í ástamálum, fyrir karlmenn og ungar stúlkur, og ævintýrið um Mjallhvíti í þýðingu Magnúsar Grímssonar.
HljóðbækurHeimasíða Blindrabókasafns Íslands.
Hvar.isVefur landsaðgangs að rafrænum gagnasöfnum og tímaritum. Aðgangurinn er opinn hjá notendum á Íslandi sem eru tengdir íslenskum netveitum.
Íslenskir textar NetútgáfanSafn texta af ýmsu tagi.
Ísmús íslenskur músík- og menningararfurHér er hægt að hlýða á hljóðrit frá fyrri hluta 20. aldar.
Landsbókasafn Íslands ÞjóðarbókhlaðaUpphafssíða safnsins með upplýsingum um afgreiðslutíma o.fl.
Leikminjasafn Íslands Á þessum vef er margvíslegur fróðleikur um íslenska leiklist og sögu hennar, bæði í máli og myndum.
Ljósmyndasafn AkranessÁ vef safnsins eru nú yfir 30.000 myndir eftir stóran hóp ljósmyndara.
Ljósmyndasafn ÍslandsLjósmyndir eru stærsti efnisflokkurinn í safnkosti Þjóðminjasafnsins og eru í sérsafni sem heitir Ljósmyndasafn Íslands. Þar eru varðveittar tæplega 4 milljónir mynda, m.a. úrval þjóðlífs- og mannamynda frá því að ljósmyndin var fundin upp árið 1839 til aldamótanna 2000 en ennig úrval teiknaðra og málaðra manna- og þjóðlífsmynda frá Íslandi frá 16.-19. öld.
Ljósmyndasafn ReykjavíkurÁ myndvef safnsins eru 20.302 myndir.
Manntalsgrunnur Þjóðskjalasafns ÍslandsHér er hægt að fletta upp í manntalinu frá 1703 og manntölunum frá 1835 og 1870.
Minjasafn ReykjavíkurMinjasafn Reykjavíkur safnar, varðveitir og rannsakar menningarminjar í Reykjavík og miðlar þekkingu um sögu og lífskjör íbúa í Reykjavík frá upphafi byggðar til nútímans.
Stofnun Árna Magnússonar á ÍslandiÁ vef stofnunarinnar má meðal annars lesa um sögu handritamálsins.
Tímarit.isStafrænt safn sem veitir aðgang að milljónum myndaðra blaðsíðna á stafrænu formi af þeim prentaða menningararfi sem varðveittur er í blöðum og tímaritum frá Færeyjum, Grænlandi og Íslandi.
Þjóðminjasafn ÍslandsÝmiss konar fræðsla er á þessum vef Þjóðminjasafnsins, meðal annars er hér rakin saga daganna.
Þjóðskjalasafn ÍslandsHeimasíða safnsins þar sem unnt er að skoða ýmislegt forvitnilegt, t.d. stafrænar myndir af skjölum og gögn úr dómsmáli um hleranir á kaldastríðsárunum.
Bragfræðivefur HallsHér eru meðal annars gagnvirk próf.
Bragfræðivefur Jóns IngvarsÞessum síðum er ætlað að veita þá innsýn í bragfræði sem nauðsynleg er til þess að þeir sem lesa og nema geti ort háttbundnar vísur og þjálfað með sér næmt brageyra.
Bragfræði og háttatal eftir Sveinbjörn BeinteinssonBragfræði Sveinbjarnar, sem kom fyrst út 1953, var endurprentuð óbreytt 1985. Sú útgáfa er á vefsvæði Kvæðamannafélagsins Iðunnar. Þar eru einnig rímnalagboðar.
Bragi ÓðfræðivefurHér er m.a. að finna ljóð og lausavísur og myndrænan braglykil.
Atlakviða Kvæðið allt með skýringum.
Best of History Websites Þessi vefsíða er eins konar hlið að meira en þúsund vefsíðum um sögu mannsins, meðal annars vefsíðu Smithsonian-stofnunarinnar sem gerð var til að minnast þúsund ára afmælis landafunda Leifs Eiríkssonar.
Handritin heimaVefsíða um íslensk handrit.
HávamálGestaþáttur með skýringum.
Heimskringla, norrænir textar og kvæði Menningarmiðlunin norrøne tekster og kvad (Norrænir textar og kvæði) er norskt sjálfseignarfyrirtæki í eigu Íslendingsins Jóns Júlíusar Filippussonar (Sandal). Tilgangur þess er meðal annars að miðla norrænum fornbókmenntum á veraldarvefnum.
ReykholtsmáldagiEignaskrá Reykholtskirkju í Reykholtsdal þar sem Snorri Sturluson bjó, elsta frumskjal sem varðveist hefur á íslensku. Texti máldagans og verkefni á Skólavef Þjóðskjalasafns.
SagnanetHér eru myndir af handritum og gömlum útgáfum íslenskra
fornbókmennta.
VíkingarFróðlegur vefur frá BBC með margs kyns margmiðlunarefni.
VöluspáKvæðið eftir texta Konungsbókar.
Galdrasýning á StröndumMeðal efnis hér eru galdramál og brennur, sjá einkum Viskubrunninn í því sambandi.
Hallgrímur PéturssonPassíusálmahandrit með hendi Hallgríms sjálfs.
Hallgrímur Pétursson og PassíusálmarnirMargrét Eggertsdóttir ritar um Hallgrím og Passíusálmana. Á þessari síðu er fleira forvitnilegt.
Jónas
HallgrímssonVefsíða í Wisconsin-Madison-háskóla með völdum ljóðum og textum listaskáldsins góða í enskri þýðingu.
Jónas
Hallgrímsson nýr vefurÞessi vefur um Jónas Hallgrímsson var opnaður þann 16. nóvember 2006 á Degi íslenskrar tungu sem haldinn er árlega á fæðingardegi Jónasar. Árið 2007 verða 200 ára frá fæðingu listaskáldsins góða og verður þess minnst með ýmsum hætti. Gert er ráð fyrir að vefurinn verði í þróun fram að 200 ára afmælisdeginum.
LausavísurÁ þessum vef frá Héraðsskjalasafni Skagfirðinga eru lausavísur af öllu tagi eftir ýmsa höfunda.
Safn íslenskra textaWikiheimild er safn íslenskra texta frá ýmsum tímum. Textarnir eru annaðhvort utan höfundaréttar eða lúta GFDL leyfinu. Á þessari síðu eru t.d.
Alþingisrímur,
Pontus rímur og
Leiðarvísir í ástamálum fyrir ungar stúlkur.
SiðbreytinginMyndir af skjölum sem snerta siðaskiptin á Skólavef Þjóðskjalasafns, meðal annars bréf Ögmundar Pálssonar, síðasta kaþólska biskupsins í Skálholti. Uppskriftir skjala og verkefni.
SjöundármálMyndir af ýmsum dómsskjölum um Sjöundármorðin 1802 á Skólavef Þjóðskjalasafns. Uppskriftir skjala og verkefni. Atburðirnir á Sjöundá og dómsmálið eru efniviðurinn í
Svartfugli Gunnars Gunnarssonar.
Skaftáreldar 1783Myndir af ýmsum skjölum á Skólavef Þjóðskjalasafns, meðal annars frá séra Jóni Steingrímssyni. Uppskriftir skjala og verkefni.
StóridómurAlþingisdómurinn frá 1564. Allur lagatextinn og verkefni á Skólavef Þjóðskjalasafns.
TextasafniðVísna- og söngtextasafn Snerpu.
VefnirTímarit Félags um átjándu aldar fræði. Fróðlegar greinar, m.a. um bókmenntir.
Baksvið ÍslandsklukkunnarSkjöl í morðmáli Jóns Hreggviðssonar, dómurinn yfir honum og eftirmál. Uppskriftir skjala og verkefni á skólavef Þjóðskjalasafns.
Baksvið Sjálfstæðs fólksKort af Jökuldalsheiði, sögusviðinu í sögu Halldórs Laxness, auk annarra skjala. Verkefni.
BarnUng Vefur um barna- og unglingabókmenntir.
Bókmenntavefur Borgarbókasafns ReykjavíkurÁ vefnum má m.a. finna upplýsingar um íslenska samtímahöfunda sem skrifa skáldskap af öllum toga, skáldsagna- og smásagnahöfunda, ljóðskáld, barnabókahöfunda og leikskáld.
Bókmenntaverðlaun Nóbels 1955Þessi vefsíða menningardeildar Ríkisútvarpsins og Ljósmyndasafns Reykjavíkur er helguð þeim atburði er Halldór Laxness hlaut Nóbelsverðlaunin. Hér er margmiðlunarefni af ýmsu tagi.
Skriðuklaustur GunnarsstofnunÁ þessari vefsíðu er meðal annars æviágrip Gunnars Gunnarssonar og ritaskrá.
Halldór Laxness Skáldið og sveitinTengsl Halldórs Laxness við Mosfellssveit og Mosfellsbæ.
JóhannesSkáldasetur Jóhannesar úr Kötlum á vefnum. Alhliða gagnagrunnur og upplýsingaveita um ævi og skáldskap hans.
KistanVeftímarit um fræði og menningu.
Ólafur Haukur SímonarsonHeimasíða höfundar.
Skírnir Tímarit Hins íslenska bókmenntafélagsHér er efnisyfirlit tímaritsins frá 1967 til 2001.
Skriðuklaustur GunnarsstofnunÁ þessari vefsíðu er meðal annars æviágrip Gunnars Gunnarssonar og ritaskrá.
Vefsetur orðlistar Davíð Stefánsson, Matthías Jochumsson og Akureyrarskáldun
Þórbergur Þórðarson á vefnumGreinar um Þórberg, ritaskrá og margt fleira.
Athugum málið53 ábendingar um íslenskt mál og málfar frá Íslenskri málstöð.
Beygingar orðaBeygingarlýsing íslensks nútímamáls á vefsíðu Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Þar má leita að orðum og einstökum beygingarmyndum orða, m.a. mannanöfnum.
Gott málÁbendingar um algengar ritvillur og hnökra á máli og stíl eftir Ólaf Oddsson.
An Icelandic-English Dictionary
Hér er íslensk-ensk orðabók þeirra Guðbrands Vigfússonar og Cleasbys.
Íslenska málfræðifélagiðÁ þessari heimasíðu félagsins er fyrsta málfræðiritgerðin auk greina um íslenskt mál og málfræði sem birst hafa í blöðum og tímaritum.
Íslenskt orðanetÍslenskt orðanet er rannsóknarverkefni sem unnið er að á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og er í því fólgið að sundurgreina og flokka íslenskan orðaforða eftir merkingareinkennum orðanna.
Íslenskt textasafnÍ safninu eru gamlir og nýir textar af ýmsum toga sem skiptast á milli 30 efnisflokka, samtals um 60 milljónir lesmálsorða. Textasafnið er mikilvægt hjálpargagn þeim sem fást við rannsóknir sem varða íslenskt mál, sagnfræði o.fl.
Íslenskur OrðasjóðurHér er orðasafn og textagrunnur sem samanstendur af u.þ.b. 250 milljónum orða og orðmynda úr íslensku nútímamáli. Textarnir í textagrunninum eru úr vefsíðusöfnun Landsbókasafns Íslands Háskólabókasafns haustið 2005. Hugbúnaðurinn og notendaumhverfið voru þróuð í verkefninu Leipzig Corpora Collection við tölvunarfræðideild Háskólans í Leipzig.
LandaheitaskráLanda- og höfuðstaðaheiti frá Íslenskri málstöð.
Orðabanki
Íslenskrar málstöðvarÍ orðabankanum eru orðasöfn úr ýmsum fræðigreinum.
OrðaleitLeit í ritmálssafni og ritmálsskrá Orðabókar Háskólans.
OrðasamböndLeit að orðasambandi með lykilorði eða textastreng á vefsíðu Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Reglur
um greinarmerkiAuglýsing um greinarmerkjasetningu frá 1974.
Reglur
um stafsetninguAuglýsing um íslenska stafsetningu frá 1974 með breytingum 1977.
BiblíuleitHér má leita að orðum í texta Biblíunnar.
Félag um átjándu aldar fræðiFélagið hefur að markmiði að efla rannsóknir á sviði átjándu aldar fræða og skyldra efna, bæði hér á landi og erlendis. Það stendur árlega fyrir fjölda ráðstefna, málþinga og funda, ýmist eitt og sér eða í samstarfi við aðra aðila.
FingrarímAð ruglast í ríminu merkir upphaflega að ruglast í tímatalinu. Fingrarím er gömul aðferð til þess að reikna á fingrum sér hvað tímanum líður.
Fræðsludeild ÞjóðleikhússinsFróðlegur vefur, í senn gagn og gaman. Þar er meðal annars umræða um leiklist.
ÍslandssöguvefurinnÞessi vefur er samstarfsverkefni menningardeildar Ríkisútvarpsins, Ljósmyndasafns Reykjavíkur og Kvikmyndasafns Íslands og er hluti af dagskrá Reykjavíkur menningarborgar Evrópu árið 2000.
Landakort.isÞaðan er greið leið í landfræðilegar upplýsingar af mörgu tagi og tenglar í vefsíður sem sýna kortagögn og annað landfræðilegt efni innanlands sem utan.
MannkynssöguannállTvö þúsund skrár um sögu einstakra manna og þjóða síðustu þrjú þúsund árin.
Póstkort frá ÍslandiMyndir af stöðum og mönnum.
Samræmt stúdentspróf í íslenskuÁ þessum vef Námsmatsstofnunar eru sýnispróf og enn fremur þau próf sem lögð hafa verið fyrir.
Samtök móðurmálskennaraHér er heimasíða samtakanna en á henni má meðal annars sjá
Skímu, sem nú er eingöngu gefin út í rafrænu formi.
VísindavefurinnÞar eru greinar um allt milli himins og jarðar.