| Forsíða | Bókalisti | Krækjur |
Danska |
|
Menu |
Danske bogstaver i MS OfficeMargir hafa lent í erfiðleikum með að setja dönsku bókstafina å, Å, ø og Ø inn í Microsoft Word. Hér á eftir fylgja nákvæmar leiðbeiningar hvernig það er gert. Athugið að til að fá ø í Internet Explorer er Alt Gr haldið niðri og ýtt á 1 5 5 eða 0 2 4 8 á töluborðinu til hægri. Å og å eru mjög einfaldir stafir. Þá er slegið á hnappinn fyrir neðan "Esc". Þar er bollan sem við þurfum yfir a. Hnappurinn virkar eins og broddurinn yfir íslensku broddstöfunum. Þ.e. fyrst er slegið á bolluna og síðan a eða A. Þegar við þurfum að nota ø og Ø er best að "forrita" ákveðna hnappa á lyklaborðinu til að skrifa þessa stafi. Fylgdu eftirfarandi leiðbeiningum. Fyrst er farið í valstikuna og smellt á Insert og farið í Symbol.
Þegar það er gert kemur upp eftirfarandi mynd :
Hér er ø valið og síðan farið í Shortcut Key. Þá kemur upp þessi valmynd.
Hér slærðu á þá hnappa sem þú vilt nota til að fá ø. Gott er að nota Ctrl og Ö. Sama leið er farin fyrir stórt Ø. Þar er til dæmis gott að nota Ctrl+Shift og Ö. |
![]() Heimasíða Flensborgarskólans | |
| Senda póst til: Evu | Ragnheiðar | Viðars |
|
© Viðar Hrafn Steingrímsson janúar 2004 |