ENSK1LR05 (ST) - Lestur, ritun og dagleg málnotkun - Starfsbraut

Viðfangsefni: Orðaforði, málskilningur, málnotkun, lestur, hlustun og ritun.


Lýsing: Áhersla verður lögð á að efla alla grunnþætti, s.s. málskilning, málnotkun, lestur, hlustun og ritun. Nemendur eru þjálfaðir í að skilja einfalt talað mál, tjá sig munnlega og skriflega og lesa og hlusta á einfalda texta um fjölbreytt málefni. Mest er unnið með orðaforða sem tengist daglegu lífi nemenda með áherslu á að auka sjálfstraust til að tjá sig á tungumálinu. Megin áhersla verður lögð á að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemendur hafa, með þeim kennsluaðferðum og hjálpargögnum sem henta hverjum og einum.


Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið: Nemandinn skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • orðaforða sem tengist daglegu lífi og athöfnum
  • lestri og ritun einfalds texta
  • mikilvægi hlustunar í tungumálanámi
  • upplýsingatækni sem nýtist í tungumálanámi

Leikniviðmið: Nemandinn skal hafa öðlast leikni í að:·

  • nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
  • lesa og hlusta á einfaldan texta og vinna verkefni tengd honum
  • byggja upp og bæta við orðaforða sinn með mismunandi aðferðum
  • svara einföldum spurningum um daglegt líf
  • fylgja eftir og taka þátt í einföldum samræðum

Hæfniviðmið: Nemandinn skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nota upplýsingatækni og hjálpargögn í tungumálanámi
  • lesa og hlusta á einfaldan texta og vinna verkefni tengd honum
  • byggja upp og bæta við orðaforða sinn með mismunandi aðferðum
  • svara einföldum spurningum um daglegt líf
  • fylgja eftir og taka þátt í einföldum samræðum
  • auka sjálfstraust og trú á eigin getu við að skilja og tjá sig á ensku