Félagsvísindabraut Flensborgarskólans í Hafnarfirði er 201 eining. Einingar brautar skiptast þannig að í kjarna eru 136 einingar, bundið val telur 45 einingar og frjálst val brautar eru 20 einingar. Nemendur brautarinnar taka að lágmarki 35 einingar á 3. hæfniþrepi og 70 einingar á 2. hæfniþrepi. Brautin er góður undirbúningur undir frekara nám í raunvísindatengdum greinum á háskólastigi, til að mynda verkfræði, læknisfræði eða tölvunarfræði.
Samhliða brautinni geta nemendur valið um svið skólans; Íþróttaafrekssvið, Félagslífssvið, Listasvið, Tæknisvið og nýjasta svið skólans, Alþjóðasvið.
Á Íþróttaafrekssviði telur kjarni brautar 156 einingar, þar af eru 26 einingar undir í íþróttatengdum áföngum. Bundið val sviðsins eru 35 einingar og frjálst val 10 einingar.
Á öðrum sviðum er kjarni brautar áfram 136 einingar, á meðan bundið val telur 35 einingar og frjálst val 10 einingar. Á öðrum sviðum er mest hægt að taka 20 einingar sem heyra beint undir viðkomandi svið, þ.e. listatengdar einingar á listasviði, forritunareiningar á tæknisviði o.s.frv.
Félagsvísindabraut - nemendur fæddir frá 2009
Félagsvísindabraut - Íþróttaafrekssvið - nemendur fæddir frá 2009
Félagsvísindabraut - félagslífssvið - nemendur fæddir frá 2009
Félagsvísindabraut - listasvið - nemendur fæddir frá 2009
Félagsvísindabraut - tæknisvið - nemendur fæddir frá 2009
Félagsvísindabraut - alþjóðasvið - nemendur fæddir frá 2009
Hér má finna Félagsvísindabraut, ásamt sviðum fyrir nemendur fædda 2008 og fyrr