Viðskipta- og hagfræðibraut og svið

Viðskipta- og hagfræðibraut Flensborgarskólans í Hafnarfirði er 201 eining. Einingar brautar skiptast þannig að í kjarna er 141 eining, bundið val telur 40 einingar og frjálst val brautar eru 20 einingar. Nemendur brautarinnar taka að lágmarki 35 einingar á 3. hæfniþrepi og 70 einingar á 2. hæfniþrepi. Brautin er góður undirbúningur undir frekara nám í viðskipta og/eða hagfræðitengdum greinum á háskólastigi.

Samhliða brautinni geta nemendur valið um svið skólans; Íþróttaafrekssvið, Félagslífssvið, Listasvið, Tæknisvið og nýjasta svið skólans, Alþjóðasvið.

Á Íþróttaafrekssviði telur kjarni brautar 161 einingu, þar af eru 26 einingar undir í íþróttatengdum áföngum. Bundið val sviðsins eru 30 einingar og frjálst val 10 einingar.

Á öðrum sviðum er kjarni brautar áfram 141 eining, á meðan bundið val telur 30 einingar og frjálst val 10 einingar. Á öðrum sviðum er mest hægt að taka 20 einingar sem heyra beint undir viðkomandi svið, þ.e. listatengdar einingar á listasviði, forritunareiningar á tæknisviði o.s.frv.

Viðskipta- og hagfræðibraut - nemendur fæddir frá 2009

Viðskipta- og hagfræðibraut - Íþróttaafrekssvið - nemendur fæddir frá 2009

Viðskipta- og hagfræðibraut - félagslífssvið - nemendur fæddir frá 2009

Viðskipta- og hagfræðibraut - listasvið - nemendur fæddir frá 2009

Viðskipta- og hagfræðibraut - tæknisvið - nemendur fæddir frá 2009

Viðskipta- og hagfræðibraut - alþjóðasvið - nemendur fæddir frá 2009

 

Hér má finna Viðskipta- og hagfræðibraut, ásamt sviðum fyrir nemendur fædda 2008 og fyrr