Opin námsbraut Flensborgarskólans í Hafnarfirði er 201 eining. Einingar brautar skiptast þannig að í kjarna eru 111 einingar og frjálst val brautar eru 90 einingar. Nemendur brautarinnar taka að lágmarki 45 einingar á 3. hæfniþrepi og 70 einingar á 2. hæfniþrepi. Brautin er góður undirbúningur undir sértækt nám á háskólastigi, þar sem nemendur hafa skýra sýn á þá námsleið sem hentar best sinni sérhæfingu. Brautin veitir einnig góðan almennan undirbúning undir frekara nám á háskólastigi og þar bendum við nemendum sérstaklega á leiðbeinandi línur (Sjá hér að neðan) brautarinnar sem hægt er að nýta sem góðan stuðning við nám á Opinni námsbraut.
Samhliða brautinni geta nemendur valið um svið skólans; Íþróttaafrekssvið, Félagslífssvið, Listasvið, Tæknisvið og nýjasta svið skólans, Alþjóðasvið.
Á Íþróttaafrekssviði telur kjarni brautar 161 einingu, þar af eru 26 einingar undir í íþróttatengdum áföngum. Bundið val sviðsins eru 30 einingar og frjálst val 10 einingar.
Á öðrum sviðum er kjarni brautar áfram 141 eining, á meðan bundið val telur 30 einingar og frjálst val 10 einingar. Á öðrum sviðum er mest hægt að taka 20 einingar sem heyra beint undir viðkomandi svið, þ.e. listatengdar einingar á listasviði, forritunareiningar á tæknisviði o.s.frv.
opin námsbraut - nemendur fæddir frá 2009
opin námsbraut - Íþróttaafrekssvið - nemendur fæddir frá 2009
opin námsbraut - félagslífssvið - nemendur fæddir frá 2009
opin námsbraut - listasvið - nemendur fæddir frá 2009
opin námsbraut - tæknisvið - nemendur fæddir frá 2009
opin námsbraut - alþjóðasvið - nemendur fæddir frá 2009
Hér má finna Opna námsbraut, ásamt sviðum fyrir nemendur fædda 2008 og fyrr
Leiðbeinandi línur brautar
Hér að neðan má sjá leiðbeinandi línur á opinni braut sem geta gagnast nemendum.
Raungreinalínur samanstanda af 8 áföngum / 40 einingum, þar sem ætlast er til þess að nemendur velji sér 6 áfanga eða 30 einingar.
Félagsgreina- og viðskipta-og hagfræðilínur samanstanda af 6 áföngum / 30 einingum.
