Starfsbraut
Starfsbraut er fjögurra ára námsúrræði ætlað nemendum sem þurfa einstaklingsmiðað nám vegna fötlunar og sértækra námsörðugleika. Námið er ætlað að veita nemendum góða, almenna undirstöðuþekkingu með áherslu á undirbúning fyrir lífið, atvinnuþátttöku og/eða frekara nám. Áhersla er á að styrkja náms-, starfs, og félagslega stöðu nemenda ásamt samskiptahæfni og sjálfstrausti.
Námið er einstaklingsmiðað og aðlagað að hverjum og einum, þannig geta áherslur og þátttaka í áföngum verið mismunandi á námstímabilinu.

Nám á starfsbraut skiptist í kjarna og frjálst val í samræmi við áherslur á öðrum brautum skólans. Í kjarna eru skylduáfangar brautarinnar. Valáfanga taka nemendur jafnt og þétt í náminu samhliða kjarnaáföngum.
Áhersluþættir valáfanga eru: Heilsuefling og lífsstíll, upplýsinga - og tölvutækni og skapandi greinar.
Nemendur á starfsbraut geta jafnframt valið að stunda nám í áföngum á öðrum brautum skólans með eða án aðstoðar stuðningsfulltrúa.
Að loknu námi skal nemandi hafa hæfni til að
- þekkja og nýta eigin styrkleika
- sjálfstæðrar ákvarðanatöku og frumkvæðis
- styrkja eigin sjálfsmynd
- tjá eigin skoðanir og líðan
- geta átt jákvæð og uppbyggileg samskipti og samstarf við annað fólk
- taka sjálfstæðar ákvarðanir varðandi eigin framtíð
- nýta sér læsi í víðu samhengi
- nota þekkingu sína og færni við lausn fjölbreyttra verkefna í lífi og starfi
- virða fjölbreytileika mannlífsins og sjónarmið annarra
- njóta umhverfisins, virða það og nýta á skynsamlegan hátt
- lesa í og/eða nýta sér mismunandi upplýsingar í umhverfinu og á samfélagsmiðlum
- vera þátttakandi á vinnumarkað að námi loknu
- taka virkan þátt í lýðræðisþjóðfélagi