Framsækni - Metnaður - Farsæld
Helstu áherslur Flensborgarskólans endurspeglast í skólastarfinu í gegnum eftirfarandi gildi:
Starfsfólk og nemendur Flensborgarskólans hafa framsækni, metnað og farsæld að leiðarljósi í öllu sínu starfi. Framsækni birtist m.a. í markmiðum skólans um eflingu rafrænna kennsluhátta og framsækis námsumhverfis, hvatningu til nemenda um sjálfstæð vinnubrögð og skapandi hugsun. Metnaður birtist í hugmyndum um sterkara námssamfélag en þar gegnir bekkjarkerfi á fyrsta ári lykilhlutverki. Farsæld nemenda birtist í hvetjandi skólabragi og öflugri nemendaþjónustu þar sem komið er til móts við ólíkar þarfir nemenda eftir bestu getu.

