ENSK3FA05 - Enska - Fagorðaforði og hugtök
Viðfangsefni: Fagorðaforði, fræðigreinar, rafræn gagnasöfn, rannsóknarritgerð og einstaklingverkefni.
Lýsing: Í áfanganum er áhersla á sérhæfðan orðaforða, lestur flóknari texta og ritgerðasmíð. Unnið er í verkefnalotum með ákveðin þemu eða verkefni. Áhersla er á fagorðaforða (academic vocabulary) og vinna nemendur verkefni tengd námsbrautum. Áfanginn á að brúa bilið milli C1 og C2 í Evrópsku tungumálamöppunni. Mikil áhersla er lögð á að velja og vinna úr fræðilegum heimildum. Ritgerð er unnin sem rannsóknarritgerð og ferilsritun.
Forkröfur: ENSK2SO05
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- orðaforða tengdan ákveðnu fræðasviði
- helstu aðferðum til að skipuleggja og skrifa langa fræðilega ritgerð á ensku
- undirstöðu heimildavinnu
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- afla sér orðaforða tengdum ákveðnu fræðasviði
- velja sér fræðilegar heimildir til ritunar rannsóknarritgerða
- Afla sér heimilda og vinna úr þeim á gagnrýninn hátt
- vinna eftir skipulögðu ferli við gerð heimildaritgerða
- skrifa margs konar texta og fylgja helstu rithefðum og reglum um málbeitingu
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- fylgja öllum reglum um gerð fræðilegra ritgerða
- nýta sér orðaforða tengdan námsefni sínu og beita honum án meiriháttar vandkvæða
- hagnýta sér fræðitexta og meta heimildir á gagrýninn hátt
- geta flutt vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinagerð
- skrifað lipra ritgerð um sértækt efni
- gera grein fyrir efni rannsóknarritgerðar í kynningu fyrir hlustendum sem eru ekki kunnugir efninu