FÉLA1IH05 (FÉLA2JS05) - Félagsfræði - Inngangur og hugtök
Ath. Eldri áfangi, nýr áfangi heitir: FÉLA2JS05
Viðfangsefni: Almenn félagsfræði og sjónarhorn félagsvísinda
Lýsing: í áfanganum er leitast við að kynna nemendum fyrir helstu viðfangsefnum félagsfræðinnar, sem og upphafi og þróun greinarinnar. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist þekkingu á þeim félagslegu öflum sem hafa áhrif á líf þeirra og félagslegt umhverfi og geti myndað sér skoðanir á meðvitaðan og gagnrýninn hátt.
Forkröfur: Engar
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- upphafi og þróun félagsfræði sem fræðigreinar
- helstu hugtökum félagsfræði
- helstu áhrifavöldunum í félagsmótun
- réttindum og skyldum sínum gagnvart samfélaginu
- helstu félagslegum festum ólíkra samfélaga og hlutverki þeirra
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita hugtökum á einföld dæmi í umræðum og skriflegum texta
- meta ýmsa félagslega þætti sem hafa áhrif á líf hans og störf
- gera grein fyrir einkennum og þróun samfélaga
- greina samhengið á milli persónulegs lífs og samfélagsins
- að setja viðfangsefni fram á skýran og fjölbreyttan hátt
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- tjá sig um samfélagsleg málefni í ræðu og riti
- leggja mat á heimildir og upplýsingar í félagsvísindum
- taka ábyrgð á eigin námi
- fylgjast með samfélagsumræðu á opinberum vettvangi