Viðfangsefni: Samskipti og samvinna.
Lýsing: Áhersla verður lögð á að efla samskiptahæfni nemenda og samvinnu þeirra á milli. Stuðlað verður að því að nemendur auki sjálfsþekkingu sína og byggi upp jákvæða sjálfsmynd. Nemendur fá þjálfun í að tjá hugsanir sínar, skoðanir og tilfinningar. Nemendur vinna fjölbreytt verkefni sem stuðla að uppbyggilegum samskiptum, samkennd og samvinnu. Lögð verður áhersla á kurteisi og gagnkvæma virðingu
Forkröfur: Engar
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- algengum samskiptareglum
- mikilvægi þess að skiptast á að deila upplýsingum og skoðunum í samræðum við aðra
- að fólk er mismunandi og getur haft ólíkar skoðanir
- að hegðun og framkoma hefur áhrif á aðra
- mikilvægi þess að vera kurteis og sýna virðingu
- mikilvægi sveigjanleika í samvinnu
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- beita algengum samskiptareglum við mismunandi félagslegar aðstæður
- skiptast á upplýsingum og skoðunum í samskiptum við aðra
- tjá skoðanir sínar á uppbyggilegan hátt
- gera sér grein fyrir að eigin framkoma hefur áhrif á aðra
- virða og taka tillit til annarra
- nota hvatningu og hrós
- vinna með öðrum að sameiginlegu verkefni
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita viðeigandi samskiptareglum
- til að mynda vinskap með því að skiptast á upplýsingum og skoðunum
- tjá eigin viðhorf og hugmyndir
- hlusta á sjónarmið annarra