HÖNN1HÖ03 (ST) - Hönnun - Starfsbraut

Viðfangsefni: Hönnun.


Lýsing: Í áfanganum fá nemendur að spreyta sig á ólíkri tækni, aðferðum og efnum innan hönnunar. Nemandinn fær þjálfun í að móta eigin hugmyndir í efni og beita hagnýtum vinnubrögðum sem gætu nýst í tómstundum síðar meir. Lögð er megin áhersla á endurnýtanleg efni og að hönnunarvinna gefi nemandanum innsýn í hönnun og handverk. Áhersla er lögð á að nýta upplýsinga- og margmiðlunartækni.


Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • ferli frá hugmynd að fullunnu verki
  • formum, línum og rými

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:·

  • nýta upplýsingatækni við leit að hugmyndum og mótun þeirra
  • skipuleggja eigið vinnuferli og sýna vandvirkni í vinnu
  • vinna með endurnýtanleg efni í listsköpun og hönnun

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • nýta hæfni sína í listrænni vinnu og sköpun
  • sjá möguleika í endurnýtingu gamalla hluta
  • sjá möguleika á endurnýtingu efna og vistvænum áhrifum þess