ÍSLE1AF05 (ST) - Afþreyingarbókmenntir - Starfsbraut

Viðfangsefni: Einkenni, boðskapur, þróun og skemmtanagildi afþreyingarbókmennta.


Lýsing: Kynntir verða helstu flokkar afþreyingarbókmennta og fjallað um skemmtanagildi þeirra. Skoðuð verða helstu einkenni s.s. uppbygging, boðskapur og þróun. Athugað verður hvernig þessir þættir breytast með tímanum í samræmi við breytta þjóðfélagshætti.


Forkröfur: Engar

Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • hugtakinu afþreyingarbókmenntir
  • helstu einkennum afþreyingarbókmennta
  • mismunandi flokkum afþreyingarbókmennta
  • hvernig útlit bóka, söguþráður og boðskapur tekur mið af samfélaginu á hverjum tíma

Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:

  • greina á milli mismunandi flokka afþreyingarbókmennta
  • finna sér afþreyingarefni út frá áhugasviði

Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • velja afþreyingarefni
  • nýta afþreyingarbækur sér til gamans
  • taka þátt í umræðu um afþreyingarbókmenntir
  • hugleiða gildi afþreyingarbókmennta í nútímasamfélagi